Fotbolti.net
01.09.23 - 06:00
Elvar Geir Magnússon

Í beinni: Dráttur í Sambandsdeildina - Breiðablik í pottinum

Í beinni: Dráttur í Sambandsdeildina - Breiðablik í pottinum
Canon

Mynd: Getty Images

Í dag er dregið í riðlakeppni Evrópudeildarinnar og Sambandsdeildarinnar. Dregið er í Mónakó og Fótbolti.net fylgist með í beinni textalýsingu.

Hægt er að horfa á drættina í beinni á heimasíðu UEFA
11:00 Dregið verður í Evrópudeildina þar sem Liverpool er meðal liða sem eru í pottinum.

12:30 Dregið verður í Sambandsdeildina þar sem Breiðablik er meðal liða sem eru í pottinum.

Sjá einnig:
Hvernig verður riðill Breiðabliks? - Þetta eru möguleikarnir

Í beinni

13:16Takk fyrir að fylgjast með!
Þessari textalýsingu er lokið
13:13
13:13
13:12
13:12
13:09Drátturinn í heild sinni:
A-riðill: Lille, Slovan Bratislava, Olimpija Ljubljana, Ki Klaksvik

B-riðill: Gent, Maccabi Tel Aviv, Zorya Luhansk, Breioablik

C-riðill: Dinamo Zagreb, Viktoria Plzen, Astana, Balkani

D-riðill: Club Brugge, Bode/Glimt, Besiktas, Lugano

E-riðill: AZ Alkmaar, Aston Villa, Legia Warsaw, Zrinjski Mostar

F-riðill: Ferencvaros, Fiorentina, Genk, Cukaricki

G-riðill: Eintracht Frankfurt, PAOK Thessaloniki, HJK Helsinki, Aberdeen

H-riðill: Fenerbahce, Ludogorets Razgrad, Spartak Trnava, Nordsjalland
13:06Svona er riðill Aston Villa:
AZ Alkmaar, Aston Villa, Legia Warsaw, Zrinjski Mostar
13:06
Þess má geta að Zorya Luhansk spilar heimaleiki sína í Póllandi vegna stríðsástandsins í Úkraínu.
13:02BREIÐABLIK FER Í B-RIÐIL
Gent frá Belgíu
Maccabi Tel Aviv frá Ísrael
Zorya Luhansk frá Úkraínu
13:01Klaksvík frá Færeyjum er í riðli með Lille, Slovan Bratislava og Olimpija Lubljana
13:01Þá er komið að því að draga úr potti fjögur, þar sem Breiðablik er
13:00Spartak Trnava fer í riðil með Fenerbahce og Ludogorets
12:59Besiktas fer í riðil með Club Brugge og Bodö/Glimt
12:59HJK fer í riðil með Frankfurt og PAOK
12:59Astana fer í riðil með Dinamo Zagreb og Viktoria Plzen
12:58Zorya Luhansk fer í riðil með Gent og Maccabi
12:58Olimpia Lubljana fer í riðil með Lille og Slovan Bratislava
12:58Genk fer í F-riðil með Ferencvaros og Fiorentina
12:57Legia Varsjá fer í E-riðil með AZ Alkmaar og Aston Villa
12:57Þá er það drátturinn úr potti þrjú
12:57Margir sem væru til í að sjá Blika fara í þennan riðil
Aston Villa er í riðli með AZ Alkmaar.
12:56Drátturinn úr potti tvö:
- Slovan Bratislava er í riðli með Lille

- Maccabi Tel-Aviv er í riðli með Gent

- Aston Villa er í riðli með AZ Alkmaar. (Þetta gæti verið rosalegur riðill fyrir Blika!)

- Viktoria Plzen fer í riðil með Dinamo.

- Fiorentina fer í riðil með Ferencvaros.

- Bodö/Glimt fer í riðil með Club Brugge.

- PAOK fer í riðil með Frankfurt.

- Ludogorets fer í riðil með Fenerbahce.
12:52
Fenerbahce fer í H-riðil. Þar með er búið að draga úr fyrsta potti.
12:52
Eintracht Frankfurt fer í G-riðil. Hæst skrifaða liðið í riðlakeppninni.
12:52
KA-banarnir í Club-Brugge fara í D-riðil. AZ Alkmaar fer í E-riðil. Ferencvaros fer í F-riðil.
12:50
Lille fer í A-riðil. Hákon Haralds og félagar. Gent fer í B-riðil. Dinamo Zagreb fer í C-riðil.
12:49Marchetti er byrjaður að hræra í pottunum
12:47Giorgio Marchetti er til í tuskið!
Mynd: Getty Images

12:45MARCHETTI ER MÆTTUR!
Það þýðir bara eitt! Drátturinn er að hefjast. Eins og venjulega verður byrjað á fyrsta styrkleikaflokki og svo unnið sig niður. Það er því eitthvað í að Breiðablik komi upp úr pottinum.
12:43Mark Noble glæsilegur með bikarinn
Mynd: Getty Images

12:41Traianos Dellas er sendiherra úrslitaleiksins
Hann aðstoðar við dráttinn ásamt Noble. Dellas varð Evrópumeistari með Grikklandi 2004.
12:38Herra West Ham, Mark Noble, mun aðstoða við dráttinn
Mynd: EPA

12:37Declan Rice hefur verið valinn besti leikmaður síðasta tímabils í Sambandsdeildinni
Mynd: EPA

12:36David Moyes og West Ham unnu Sambandsdeildina á síðasta tímabili
Mynd: Getty Images

12:30Við munum einbeita okkur að riðli Breiðabliks í þessari textalýsingu núna
Athöfnin er farin af stað. Hún mun byrja á því að rifjuð verða upp tilþrif frá síðasta tímabili.
12:30Stefið er komið í gang!
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Guðjón Heiðar Valgarðsson er væntanlega límdur við þessa textalýsingu núna!
12:24Nokkrar mínútur í þetta! Spenna í lofti!
Mynd: Getty Images

12:19Leiðin til Aþenu
Hversu langt eru stuðningsmenn Breiðabliks að leyfa sér að dreyma? Úrslitaleikurinn verður í Aþenu í Grikklandi 29. maí.

Mynd: AEK Arena
12:13Bak við tjöldin
Mynd: Getty Images

Það er verið að gera Giorgio Marchetti kláran í að draga.
12:12Það var fagnað í klefa Blika í gær
12:09Dagur Dan fylgdist spenntur með sínum fyrrum samherjum í gær
12:07
12:06Getur ekki kvartað
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Sá Óskar Hrafn einhverntímann fyrir sér að hann myndi vera að þjálfa í riðlakeppni í Evrópu?

„Nei, ég sá ekki einu sinni fyrir mér ég myndi þjálfa í efstu deild þegar ég var með Gróttu 2018, kannski aðeins 2019 en ég hef aldrei mikið verið að pæla í hvað tekur við næst, ég reyni bara að vinna vinnuna mína eins vel og ég get og leyfi öðrum að dæma um það hversu góð hún er en auðvitað er þetta bara búið að vera frábær tími hjá félaginu og ég er þakklátur fyrir það, ég er búinn að vera heppinn með leikmenn, með samstarfsfólk, ég get ekki kvartað Arnar," sagði Óskar í viðtali við Arnar Laufdal í gær.

Sjá viðtalið í heild:
Óskar Hrafn: Hljómar fallega þegar þú segir það
12:00Til gamans settum við saman þrjá mögulega riðla sem Breiðablik gæti fengið
Möguleikarnir eru fjölmargir en til gamans setur Fótbolti.net saman þrjá mögulega riðla Blika.

Mögulegur riðill Breiðabliks:
Eintracht Frankfurt (Þýskaland)
Aston Villa (England)
Genk (Belgía)
Breiðablik (Ísland)

Annar mögulegur riðill Breiðabliks:
Lille (Frakkland)
Fiorentina (Ítalía)
HJK Helsinki (Finnland)
Breiðablik (Ísland)

Svo einn sem yrði kannski ekki alveg eins kynþokkafullur:
Dinamo Zagreb (Króatía)
Bodö/Glimt (Noregur)
Astana (Kasakstan)
Breiðablik (Ísland)
11:58Verða heimaleikir Breiðabliks spilaðir erlendis?
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson


Ljóst er að Breiðablik fær ekki að spila heimaleiki sína á Kópavogsvelli. Hann er ekki löglegur og alveg skýrt að ekki er möguleiki á neinni undanþágu.

Flosi Eiríksson, formaður Breiðabliks, segir við mbl.is að Laugardalsvöllur sé eini löglegi völlurinn hér á landi. Riðlakeppnin verður spiluð frá 21. september til 14. desember og óvíst hvort hægt sé að tryggja að völlurinn verði leikfær í lokaumferðunum.

„Regl­ur UEFA kveða á um að við þurf­um að spila alla þrjá heima­leik­ina okk­ar á sama vell­in­um og það er því ekki í boði að flakka á milli valla. Við verðum að vera al­gjör­lega ör­ugg um það að geta spilað leik­ina hérna heima og við höf­um rætt þann mögu­leika við KSÍ," segir Flosi við mbl.is.

Breiðablik skoðar möguleika á völlum erlendis. KÍ Klaksvík frá Færeyjum komst einnig í riðlakeppni Sambandsdeildarinnar en liðið spilar á þjóðarleikvangnum í Þórshöfn, hann er hringbyggður og lagður gervigrasi. Leikið er á sömu leikdögum og því ljóst að Breiðablik getur ekki nýtt þann völl.
11:57Breiðablik í fjórða styrkleikaflokki
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Pottur eitt: Eintracht Frankfurt, Dinamo Zagreb, Club Bruges, AZ Alkmaar, KAA Gent, Fenerbahce, LOSC Lille, Ferencvaros

Pottur tvö: PAOK, SK Slovan Bratislava, Maccabi Tel-Aviv, Victoria Plzen, Aston Villa, Ludogorets Razgrad, Fiorentina, Bodo/Glimt.

Pottur þrjú: Genk, Zorya Luhansk, Astana, Besiktas, HJK Helsinki, Legia Warsaw, Spartak Trnava, Olimpija Ljubljana.

Pottur fjögur: HSK Zrinjski, KI Klaksvík, Aberdeen, FK Cukaricki, FC Lugano, Breiðablik, FC Nordsjaelland, Ballkani.
11:55Viktor Karl vill heimsækja gamlar slóðir
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir


„Þetta er eitthvað sem við höfum unnið markvisst að í einhver ár. Að hafa klárað þetta markmið er hrikalega sætt. Ég gæti ekki verið sáttari, ólýsanleg tilfinning," sagði Viktor Karl Einarsson sem skoraði eina markið á Kópavogsvelli í gær.

Viktor segir Blika hafa haft augastað á Sambandsdeildinni síðan keppnin var sett á laggirnar. Hann er hluti af þeim kjarna sem Óskar Hrafn Þorvaldsson hefur verið að vinna með síðan hann tók við liðinu.

„Við erum þónokkrir sem hafa verið saman í nokkur ár núna. Það hafa myndast vinatengsl og tengsl inni á vellinum. Ég held að það sé klárlega að skila sér í þessum árangri."

Er Viktor með óskamótherja?

„Ég persónulega væri til í að heimsækja gamlar slóðir hjá AZ Alkmaar. Það væri líka gaman að fara á Villa Park."

Sjá viðtalið í heild:
Viktor Karl vill heimsækja gamlar slóðir - „Væri líka gaman að fara á Villa Park“
11:52Geggjað, risastórt og sætt
Breiðablik er fyrsta íslenska karlaliðið til að tryggja sér þátttöku í riðlakeppni í Evrópu.

„Þetta er geggjað, risastórt, sætt og við ætlum sannarlega að njóta þess í kvöld. Þetta var blanda, vissulega var léttir en svo geðveik tilfinning og þá virkilega fann maður hversu stórt þettar er, trompar allt annað sem maður hefur gert í fótboltanum," sagði Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði Breiðabliks, við Fótbolta.net í gær.

Sjá viðtalið í heild:
Fyrirliðinn segir afrekið trompa allt - „Í ársbyrjun 2020 fékk maður þessa barnalegu trú"


Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
11:48Gleði í Kópavoginum
Það var mikil gleði í Kópavoginum í gær þegar Breiðablik lagði FC Struga 1-0 og vann einvígið samtals 2-0. Arnar Laufdal var á takkaborðinu fyrir Fótbolta.net og textalýsti leiknum.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
11:45Hér eru pottarnir!
Mynd: Twitter / UEFA Rankings

11:44Þá skiptum við yfir í græna litinn!
Nú er komið að sjálfri Sambandsdeildinni, þar sem Breiðablik er í pottinum! Drátturinn hefst 12:30.
11:39Valgeir mætir Leverkusen
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Valgeir Lunddal og félagar í Häcken eru í riðli með Leverkusen, Qarabag og Molde.
11:37Minn uppáhalds riðill
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kristian Nökkvi Hlynsson og félagar í Ajax eru í rosalegum riðli með Marseille, Brighton og AEK Aþenu.
11:36H-riðill (Staðfest)
Leverkusen
Qarabag
Molde
Häcken
11:35G-riðill (Staðfest)
Roma
Slavaia Prag
Sheriff
Servette
11:34F-riðill (Staðfest)
Villareal
Rennes
Maccabi Haifa
Panathinaikos
11:34E-riðill (Staðfest)
Liverpool
LASK
Union
Toulouse

Mynd: Getty Images
11:33D-riðill (Staðfest)
Atalanta
Sporting
Sturm Graz
Rakow Czestochowa
11:33C-riðill (Staðfest)
Rangers
Real Betis
Sparta Prag
Limassol
11:32B-riðill (Staðfest) - Rosa riðill
Ajax
Marseille
Brighton
AEK Aþena
11:31A-riðill (Staðfest)
West Ham
Olympiakos
Freiburg
Backa Topola
11:31Þá á bara eftir að draga úr fjórða styrkleikaflokki
11:30Molde er í riðli með Bayer Leverkusen og Qarabag
11:30Freiburg er með Olympiakos og West Ham
11:30Sheriff er með Roma og Slavia Prag
11:29Sturm Graz er í riðli með Atalanta og Sporting
11:29Maccabi Haifa er í riðli með Rennes og Villarreal
11:29Royale Union Saint-Gilloise frá Belgíu er í riðli með Liverpool og LASK
11:28Sparta Prag er með Rangers og Real Betis
11:27Brighton er í riðli með Marseille og Ajax
MJÖG STERKUR RIÐILL!
11:26Þá er komið að því að draga upp úr potti þrjú
Þetta er hálfnað.
11:26
Qarabag frá Aserbaídsjan fer í riðil með Bayer Leverkusen.
11:26
Slavia Prag og Roma eru saman í riðli.
11:26
Rennes og Villarreal eru saman í riðli.
11:25
LASK frá Austurríki fer í riðil með Liverpool.
11:24
Atalanta og Sporting Lissabon eru saman í riðli.
11:24
Rangers og Real Betis eru saman í riðli.
11:24
Ajax og Marseille eru saman í riðli.
11:23
Olympiakos og West Ham eru saman í riðli.
11:22Villarreal fer í F-riðil og Atalanta í D-riðil
11:21Liverpool fer í E-riðil
Margir stuðningsmenn Liverpool eru að fylgjast spenntir með.
11:20Ajax fer í B-riðil og Rangers í C-riðil
Þetta er allt að rúlla, aðal spennan verður þegar farið verður í að draga úr potti tvö.
11:19Drátturinn er hafinn, West Ham er fyrsta liðið sem kemur upp úr pottinum
Hamrarnir fara í A-riðil. Moyes og félagar unnu Sambandsdeildina með glæsibrag á síðasta tímabili.
11:16Drátturinn er að hefjast, rifjum upp styrkleikaflokkana góðu
Pottur eitt: West Ham, Liverpool, Roma, Ajax, Villarreal, Bayer Leverkusen, Atalanta, Rangers.

Pottur tvö: Sporting Lissabon, Slavia Prag, Stade Rennes, Olympiakos, Real Betis, LASK, Marseille, Qarabag.

Pottur þrjú: Molde, Brighton & Hove Albion, Sheriff Tiraspol, Union Saint-Gilloise, Freiburg, Sparta Prag, Maccabi Haifa, Sturm Graz.

Pottur fjögur: Toulouse, AEK Athens, FK TSC, Servette, Panathinaikos, Rakow Czestochowa, Aris Limassol, BK Hacken.
11:14KÓNGURINN ER MÆTTUR!
Mynd: Getty Images

Marchetti er kominn á svið. Maðurinn sem er bestur í Evrópu að draga. Aðeins einu sinni hefur dráttur mistekist hjá honum. Hann er núna að útskýra fyrirkomulagið. Það stóðu allir á fætur og klöppuðu þegar hann mætti inn á salinn.
11:13John O'Shea sendiherra úrslitaleiksins
Mynd: Getty Images

Úrslitaleikurinn fer fram í Dublin og því vel við hæfi að John O'Shea fyrrum leikmaður Manchester United og írska landsliðsins sé heiðursgestur og aðstoði við dráttinn. Vann fjölda titla með United, þar á meðal Meistaradeildina.
11:09Stephane Mbia heiðursgestur
Mynd: Getty Images

Kamerúninn aðstoðar við dráttinn. Hann vann Evrópudeildina tvívegis með Sevilla.
11:06Sviðið er alveg glæsilegt - Engu til sparað
Mynd: Getty Images

11:03Sevilla vann Roma í úrslitaleik Evrópudeildarinnar á síðasta tímabili, eftir vítakeppni
Mynd: EPA

Jose Mourinho var gjörsamlega trylltur út í Anthony Taylor dómara. Stjörnubilaður.
11:02Athöfnin er farin af stað!
Alex Scott og Matt Smith eru kynnar á sviðinu. Mikið um dýrðir í Mónakó. Byrjað er á myndbandi þar sem síðasta tímabil í Evrópudeildinni er rifjað upp.
10:49Blikar mættir til Mónakó
10:43Svo verður það Sambandsdeildardrátturinn
10:37
10:21Úrslitaleikur Evrópudeildarinnar verður spilaður í Dublin
Á hinum ljómandi fína Aviva leikvangi. Ég hef heimsótt hann, sá þar Hörð Björgvin Magnússon skora fallegt aukaspyrnumark í vináttulandsleik gegn Írlandi.

Mynd: Getty Images
10:19Leikirnir í riðlakeppninni...
verða spilaðir 21. september, 5. október, 26. október, 9. nóvember, 30. nóvember. og 14. desember. Merkið í dagatalið ykkar.
09:59Styrkleikaflokkar Evrópudeildarinnar
Dregið er í átta fjögurra liða riðla, lið frá sama landi geta ekki verið saman í riðli.

Pottur eitt: West Ham, Liverpool, Roma, Ajax, Villarreal, Bayer Leverkusen, Atalanta, Rangers.

Pottur tvö: Sporting Lissabon, Slavia Prag, Stade Rennes, Olympiakos, Real Betis, LASK, Marseille, Qarabag.

Pottur þrjú: Molde, Brighton & Hove Albion, Sheriff Tiraspol, Union Saint-Gilloise, Freiburg, Sparta Prague, Maccabi Haifa, Sturm Graz.

Pottur fjögur: Toulouse, AEK Athens, FK TSC, Servette, Panathinaikos, Rakow Czestochowa, Aris Limassol, BK Hacken.
09:55Góðan og gleðilegan daginn!
Það er rosalegur dagur! Það er ekki bara Gluggadagur heldur líka Evrópudráttardagur! Mikil spenna í Kópavoginum þar sem Breiðablik verður í pottinum í Sambandsdeildinni en dregið verður í þá keppni 12:30.

Dregið verður í Evrópudeildina 11:00.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.