Hinrik Harðarson (Þróttur R.)
Hinrik Harðarson, leikmaður Þróttar, er leikmaður 15. umferðar í 2. deild - í boði Ice - að mati Ástríðunnar.
Hinrik er átján ára gamal og hefur hann skorað tvö mörk í fjórtán leikjum í 2. deild í sumar. Þau komu bæði gegn KF í síðustu umferð og fyrir þá frammistöðu er hann leikmaður umferðarinnar.
Hinrik er átján ára gamal og hefur hann skorað tvö mörk í fjórtán leikjum í 2. deild í sumar. Þau komu bæði gegn KF í síðustu umferð og fyrir þá frammistöðu er hann leikmaður umferðarinnar.
„Tvö mörk í þessari völtun sem Þróttarar buðu uppá á móti KF. Fyrir tímabilið spáði ég því að hann yrði efnilegastur, er búinn að vera bíða og loksins kom eitthvað. Hann setur þarna tvö mörk og spilaði frábærlega í þessum leik," sagði Sverrir Mar Smárason í Ástríðunni.
„Þeir réðu lítið sem ekkert við hann ásamt fleirum í þessu Þróttaraliði. Hann er virkilega góður leikmaður með góða leikmenn með sér. Hann styrkist með að hafa svona góða leikmenn með sér," sagði Óskar Smári Haraldsson.
Hægt er að hlusta á Ástríðuna í spilaranum neðst í fréttinni eða í öllum hlaðvarpsveitum
Sextánda umferðin:
föstudagur 12. ágúst
18:00 KF-Völsungur (Ólafsfjarðarvöllur)
19:30 Þróttur R.-Magni (AVIS völlurinn)
laugardagur 13. ágúst
14:00 Höttur/Huginn-Reynir S. (Vilhjálmsvöllur)
14:00 Njarðvík-KFA (Rafholtsvöllurinn)
16:00 ÍR-Víkingur Ó. (ÍR-völlur)
mánudagur 29. ágúst
18:00 Ægir - Haukar (Þorlákshafnarvöllur)
Fyrri leikmenn umferðarinnar:
1. umferð - Chico (ÍR)
2. umferð - Magnús Þórir Matthíasson (Njarðvík)
3. umferð - Kristófer Óskar Óskarsson (Magni)
4. umferð - Sævar Gylfason (KF)
5. umferð - Izaro (Þróttur)
6. umferð - Dimitrije Cokic (Ægir)
7. umferð - Úlfur Ágúst Björnsson (Njarðvík)
8. umferð - Úlfur Ágúst Björnsson (Njarðvík)
9. umferð - Áki Sölvason (Völsungur)
10. umferð - Miroslav Zhivkov Pushkarov (Þróttur R.)
11. umferð - Marteinn Már Sverrisson (KFA)
12. umferð - Ólafur Darri Sigurjónsson (Haukar)
13. umferð - Ivan Jelic (Reynir S.)
14. umferð - Áki Sölvason (Völsungur)
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir