Isak, Tuchel, Sesko, Amorim, Rabiot, Branthwaite og fleiri góðir í slúðrinu í dag
   mán 15. október 2018 20:47
Arnar Daði Arnarsson
Myndband: Sjáðu stórkostlegt og sögulegt mark Alfreðs
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Alfreð Finnbogason skoraði fyrsta mark Íslands í Þjóðadeildinni þegar hann minnkaði muninn í 2-1 í tapi liðsins gegn Sviss á Laugardalsvellinum í kvöld.

Eftir tvö töp í röð gegn Belgíu og Sviss í fyrstu tveimur leikjum Íslands í Þjóðadeildinni náði Alfreð Finnbogason að brjóta ísinn á 81. mínútu leiksins í kvöld.

Mark Alfreðs var af dýrari gerðinni, langskot utan af velli í fjærstöngina og inn. Algjört gull af marki.

Í viðtali við Tómas Þór Þórðarson íþróttafréttamann hjá Stöð2Sport sagði Alfreð að þetta væri fallegasta mark sem hann hafi skorað á Laugardalsvellinum.

Hægt er að sjá mark Alfreðs hér.





Athugasemdir
banner
banner