Brasilíski sóknarmaðurinn Neymar er ekki bara frægur fyrir að vera meðal bestu knattspyrnumanna heims heldur einnig fyrir ótrúlega mikinn leikaraskap.
Neymar var nýlega búinn að ná sér eftir erfið meiðsli og mistókst að láta ljós sitt skína almennilega á heimsmeistaramótinu.
Hann fangaði þó athygli almennings með fáránlegum tilþrifum sínum þar sem hann dýfði sér niður við minnsta tilefni og sneri sér í hring eftir hring á grasinu.
Mikið grín var gert að Neymar á netinu og í kjölfarið varð til 'Neymar Challenge' eða Neymar áskorunin.
Neymar virðist ekki kippa sér of mikið upp við grínið, en hér fyrir neðan er hægt að sjá þegar hann tekur Neymar áskorunina sjálfur og öskrar í endan „þetta er brot!!"
"1, 2, 3...IT'S A FOUL!"@NeymarJr getting in on the #NeymarChallenge 😂 pic.twitter.com/Qzbxfw8fG2
— Bleacher Report (@BleacherReport) July 19, 2018
This has to be one of the best #NeymarChallenge pic.twitter.com/JAw6HEABE4
— Mike Mesikenor (@mikemesikenor) July 14, 2018
Athugasemdir