Fótboltasumarið í kvennaboltanum á Íslandi fer formlega af stað þegar Breiðablik og Þór/KA eigast við í Meistarakeppni KSÍ.
Breiðablik vann bæði deild og bikar í fyrra en Þór/KA endaði í öðru sæti deildarinnar og fékk því réttinn til að keppa í Meistarakeppninni.
Talsverðar breytingar hafa orðið á leikmannahópum beggja liða síðan í fyrra og talið að Valur muni veita þessum tveimur stórveldum mikla samkeppni í ár.
Þetta er þó ekki eini úrslitaleikur dagsins því Selfoss og Dalvík/Reynir munu eigast við í úrslitaleik B-deildar Lengjubikars karla í dag. Liðin mætast í Akraneshöllinni.
Þá eru einnig þrír leikir á dagskrá í B- og C-deildum Lengjubikars kvenna. Í B-deild á topplið Fylkis leik við botnlið HK/Víkings á meðan undanúrslitaleikirnir eiga sér stað í C-deildinni.
Tindastóll mætir Völsungi á Sauðárkróki og Þróttur R. gerir sér ferð til Akureyrar að keppa við Hamrana.
Meistarakeppni KSÍ
16:00 Breiðablik-Þór/KA (Kórinn)
Lengjubikar karla B-deild - Úrslit
14:00 Selfoss-Dalvík/Reynir (Akraneshöllin)
Lengjubikar kvenna B-deild - Riðill
14:00 HK/Víkingur-Fylkir (Víkingsvöllur)
Lengjubikar kvenna C-deild - Úrslit
14:00 Tindastóll-Völsungur (Sauðárkróksvöllur)
16:00 Hamrarnir-Þróttur R. (Boginn)
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir