Isak, Tuchel, Sesko, Amorim, Rabiot, Branthwaite og fleiri góðir í slúðrinu í dag
   fös 27. september 2019 16:15
Magnús Már Einarsson
Sissoko skrifar undir nýjan samning við Tottenham
Mynd: Getty Images
Moussa Sissoko, miðjumaður Tottenham, hefur skrifað undir nýjan samning við félagið til ársins 2023.

Sissoko hefur spilað 132 leiki með Tottenham síðan hann kom til félagsins frá Newcastle árið 2016.

„Auðvitað er ég mjög stoltur yfir því að hafa skrifað undir nýjan samning," sagði hinn þrítugi Sissoko eftir undirskrift.

„Þetta þýðir að þeir hafa trú á mér og eru ánægðir með það sem ég er að gera. Vonandi get ég getið mitt besta til félagsins í langan tíma og vonandi getum við unnið titla saman."

Athugasemdir
banner
banner
banner