Man Utd ætlar að reka Ten Hag - Hver tekur við? - Tuchel hefur áhuga á starfinu
   þri 26. september 2017 21:22
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Myndband: Bale með glæsilegt mark - Tók hann á lofti
Mynd: Getty Images
Gareth Bale skoraði glæsilegt mark þegar Real Madrid heimsótti Borussia Dortmund í Meistaradeildinni í kvöld.

Hann tók boltann á lofti og smellti honum í netið.

Hann kom Madrídingum yfir, en þeir unnu að lokum 3-1. Cristiano Ronaldo, félagi Bale, skoraði hin tvö mörkin.

„Þetta er svo áreynslulaust, en samt svo huggulegt. Þetta er eins og góð gólfsveifla," sagði Guðmundur Benediktsson um markið hjá Bale á Stöð 2 Sport. Hjörvar Hafliðason, sem var ásamt Guðmundi og Bjarna Guðjónssyni í settinu, valdi markið sem Bale sem tilþrif kvöldsins í Meistaradeildarmessunni.

Smelltu hér til að sjá markið
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner