Man Utd ætlar að reka Ten Hag - Hver tekur við? - Tuchel hefur áhuga á starfinu
   lau 05. maí 2018 13:48
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Shawcross: Við munum koma til baka
,,Höfum ekki verið nægilega góðir allt tímabilið
Shawcross bugaður í leikslok.
Shawcross bugaður í leikslok.
Mynd: Getty Images
Ryan Shawcross, fyrirliði Stoke, var auðvitað miður sín þegar hann mætti í viðtöl eftir leikinn gegn Crystal Palace í dag. Stoke tapaði leiknum 2-1 og er fallið úr ensku úrvalsdeildinni.

Sjá einnig:
England: Stoke fallið úr ensku úrvalsdeildinni (Staðfest)

„Auðvitað er erfitt að taka þessu en þetta var ekki bara þessi leikur, þetta er allt tímabilið og við höfum ekki verið nægilega góðir allt tímabilið," sagði Shawcross.

„Að lokum er þetta undir leikmönnunum komið; við höfum ekki verið nægilega góðir."

„Stuðningsmennirnir hafa verið stórkostlegir. Úrslitin eru slæm en þeir styðja okkur áfram."

„Þetta er frábært félag og við munum koma til baka."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner