Það er vanalega mikið um dýrðir þegar Liverpool klúbburinn á Íslandi heldur sínar árshátíðir og verður engin undantekning á annað kvöld. Sjálfur Jamie Carragher mun heiðra stuðningsmenn með nærveru sinni en þetta er í fyrsta sinn sem hann kemur til landsins.
Carragher þarf vart að kynna fyrir lesendum. Hann lék allan sinn feril með Liverpool, van Meistaradeildina og fjöldan allan af bikurum ásamt því að leika 38 landsleiki fyrir England.
„Ég held að ég hafi aldrei komið hingað og spilað með Liverpool í Evrópukeppni, svo þetta er í fyrsta sinn sem ég kem til landsins. Það er gaman að koma hingað og hef ég heyrt frábæra hluti um til dæmis Bláa lónið og ætla ég þangað á morgun.“
Landsliðsval Englands, tímabil Liverpool, brotthvarf Coutinho og væntanleg ráðning Arsenal á Mikel Arteta var m.a. það sem Carragher fór yfir í spjalli við fotbolti.net en viðtalið má sjá í heild í spilaranum.
Athugasemdir