Man Utd og Arsenal vilja Guehi - Osimhen gæti farið til Chelsea eða PSG - Geertruida gæti fylgt Slot til Liverpool
   fim 11. september 2014 09:43
Magnús Már Einarsson
Remy: Ekki heiðarlegt af Liverpool
Mynd: Chelsea
Loic Remy er ósáttur við að Liverpool hafi hætt við að kaupa sig frá QPR í sumar.

Félögin höfðu náð samkomulagi um kaupverð upp á 8,5 milljónir punda en Liverpool hætti við kaupin eftir læknisskoðun hjá Remy.

Á endanum fór franski framherjinn síðan til Chelsea áður en félagaskiptaglugginn lokaði en hann segist vera hissa á framkomu Liverpool.

,,Ég skil ekki ákvörðun Liverpool. Þetta var ekki heiðarlegt af þeirri hálfu," sagði Remy.

,,Ég var ekki hræddur. Ég veit nákvæmlega hvað amar að mér og ég hef hitt alla sérfræðinga í heimi. Margir leikmenn eru í sömu stöðu og ég og Liverpool veit það."
Athugasemdir
banner