Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
   lau 16. mars 2024 13:00
Aksentije Milisic
Glódís spilaði þegar Bayern styrkti stöðu sína á toppnum
Mynd: EPA

Íslenski landsliðsmaðurinn Glódís Perla Viggósdóttir var að venju í byrjunarliði Bayern Munchen í dag en liðið tók á móti RB Leipzig í kvennaboltanum í Þýskalandi.


Bayern Munchen vann afar sannfærandi 5-0 sigur þar sem Pernille Harder og Lea Schüller gerðu báðar tvennu og þá skoraði Linda Dallmann eitt. Staðan var orðin 3-0 eftir einungis nítján mínútna leik.

Glódís spilaði um klukkustund í dag og fékk því góða hvíld síðasta hálftímann en heimastúlkur bættu við tveimur mörkum eftir að Glódís fór af velli.

Bayern Munchen er á toppi deildarinnar með 42 stig og svo kemur Wolfsburg í öðru sætinu með 38 stig. RB Leipzig er hins vegar í brasi en liðið situr þriðja neðsta sæti deildarinnar með einungis þrettán stig.  


Athugasemdir
banner
banner