Bayern reynir aftur við Walker - Neves til Man Utd?
   þri 18. október 2016 14:30
Jóhann Ingi Hafþórsson
Myndband: Hversu lélegur var Pogba í gær?
Paul Pogba
Paul Pogba
Mynd: Getty Images
Það hefur eflaust ekki farið framhjá neinum að Liverpool og Manchester United gerðu markalaust jafntelfi í ensku úrvalsdeildinni í gær.

Leikurinn var frekar bragðdaufur en Liverpool komst næst því að skora en David de Gea stóð vel í marki United.

Paul Pogba hefur ekki byrjað sérstaklega vel síðan hann mætti aftur til Manchester en hann átti líklega sinn versta leik á tímabilinu í gær eins og meðfylgjandi myndskeið gefur til kynna.

Hann var lítið í boltanum, gaf mikið af slæmum sendingum, tapaði fullt af einvígum og ógnaði nánast ekki neitt.

Vefsíðan Goal.com hefur búið til myndband um frammistöðu Pogba í leiknum í gær, sem sjá má hér að neðan.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner