Man Utd og Arsenal vilja Guehi - Osimhen gæti farið til Chelsea eða PSG - Geertruida gæti fylgt Slot til Liverpool
   sun 19. febrúar 2017 15:54
Elvar Geir Magnússon
Rashford flytur út frá mömmu - Sjáðu nýja húsið
Rashford á bjarta framtíð.
Rashford á bjarta framtíð.
Mynd: Getty Images
Sóknarmaðurinn ungi Marcus Rashford er búinn að kaupa sér hús en þessi 19 ára leikmaður Manchester United hefur búið í leiguíbúð með móður sinni og systkinum.

Hann er nú búinn að fjárfesta í húsi sem kostaði hann um 253 milljónir íslenskra króna en um er að ræða hús með sex svefnherbergjum, fjórum baðherbergjum og tvöföldum bílskúr.

Eignin er með stóran garð og er staðsett í nágrenni við heimili margra af liðsfélögum hans.

Framkvæmdir standa yfir við húsið og áætlað er að Rashford flytji inn í maí.

Rashford er í byrjunarliði United sem mætir Blackburn í bikarnum 16:15.
Athugasemdir
banner
banner