Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
   þri 19. mars 2024 12:13
Elvar Geir Magnússon
Búdapest
Farið varlega með Jóa Berg
Icelandair
Ísland æfir í Búdapest.
Ísland æfir í Búdapest.
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
Íslenska landsliðið var að ljúka æfingu í Búdapest en undirbúningurinn fyrir leikinn gegn Ísrael heldur áfram.

Ekki var æft á sama velli og í gær og umhverfið á æfingunni var heldur betur með austur-evrópskum stíl.

Allir nema Jóhann Berg Guðmundsson voru með á æfingunni þann stundarfjórðung sem fjölmiðlar fengu að fylgjast með en samkvæmt Ómari Smárasyni samskiptastjóra KSÍ er einfaldlega verið að stýra álaginu á honum.

Það má búast við því að Jóhann verði með fyrirliðabandið í leiknum á fimmtudaginn.

Albert Guðmundsson var með á æfingunni en hann verður ekki tekinn úr hópnum þrátt fyrir að mál hans hafi verið tekið upp að nýju eftir áfrýjun.

Ísrael og Ísland mætast á fimmtudagskvöld en leikið verður í Búdapest. Sigurliðið í leiknum mætir Úkraínu eða Bosníu í úrslitaleik um sæti á EM.


Athugasemdir
banner
banner
banner