Bayern reynir aftur við Walker - Neves til Man Utd?
banner
   mán 20. júlí 2015 10:00
Magnús Már Einarsson
Heimild: BBC 
Pedro inn fyrir Di Maria hjá Man Utd?
Powerade
Pedro gæti farið til Manchester United.
Pedro gæti farið til Manchester United.
Mynd: Getty Images
Dzeko er orðaður við Arsenal.
Dzeko er orðaður við Arsenal.
Mynd: Getty Images
Tæpar þrjár vikur eru í að boltinn byrji að rúlla í ensku úrvalsdeildinni og ensku blöðin halda áfram að slúðra.



Arsenal er að íhuga tilboð í Edin Dzeko framherja Manchester City. (Daily Star)

Angel Di Maria er á óskalista PSG en Manchester United vill fá 52 milljónir punda fyrir Argentínumanninn. (L'Equipe)

Manchester United gæti fengið Pedro frá Barcelona ef Di Maria fer til Frakklands. (Daily Mirror)

Nwecastle er að kaupa Aleksandar Mitrovic framherja Anderlecht á 13,5 milljónir punda og varnarmanninn Chancel Mbema á 7,5 milljónir punda. (Daily Mail)

Jose Mourinho er tilbúinn að selja Juan Cuadrado eftir slaka byrjun hans hjá Chelsea. Cuadrado kom til Chelsea á 26,1 milljón punda í janúar og Mourinho vill endurheimta þá upphæð. (London Evening Standard)

Pep Guardiola vill halda Mario Gotze hjá FC Bayern en Juventus, Liverpool og Manchester United hafa sýnt honum áhuga. (Daily Express)

Fenerbahce vill fá Aaron Lennon kantmann Tottenham í sínar raðir en félagið hefur nú þegar fengið Robin van Persie og Nani úr ensku úrvalsdeildinni í sumar. (Sun)

Pierre-Emerick Aubameyang, framherji Dortmund, hefur verið orðaður við Arsenal en þýska félagið segir að leikmaðurinn sé ekki til sölu. (Daily Mirror)

West Ham, Bournemouth, Leicester og Newcastle eru að berjast um Charlie Austin framherja QPR. (Daily Star)

Stoke er tilbúið að gera Andriy Yarmolenko að dýrasta leikmanni í sögu félagsins með því að kaupa hann á 15 milljónir punda frá Dynamo Kiev. (Stoke Sentinel)

Aston Villa er í viðræðum við Tottenham um kaup á Emmanuel Adebayor en hann á að fylla skarð Christian Benteke sem er á leið til Liverpool. (Daily Mail)

Tony Pulis, stjóri WBA, vill að Saido Berahino skrifi undir nýjan samning en Tottenham hefur sýnt honum áhuga. (Birmingham Mail)
Athugasemdir
banner
banner