Bayern reynir aftur við Walker - Neves til Man Utd?
„Þetta er eiginlega nýtt sport sem maður þarf að venjast“
Brjálaður út í dómgæsluna - „Algjörlega úr takt við leikinn“
Benedikt Warén: Verðum að gera þetta að heimavellinum okkar
Heimir Guðjóns um átökin: Verður að vera klár í baráttu
Ómar Ingi: Eitthvað sem er ekki hægt að bjóða uppá
Davíð Smári: Algjör iðnaðarsigur - Við erum ein heild
Leist langbest á Fylki: Erfið ákvörðun en ég stend með henni
Gunnar Magnús: Vikan á heimilinu verður eitthvað sérstök
Jóhann Kristinn: Ómetanlegt að hafa markaskorara eins og Söndru
Guðni Eiríks: Þetta var ekki 4-0 leikur
Eva Rut: Skítamark úr horni
Sigurborg Katla: Hamingja í vatninu
Nik: Telma vann leikinn fyrir okkur
Áslaug Munda sneri óvænt til baka - „Mjög ánægð með að vera komin heim"
Bryndís Rut: Partur af fjölskyldunni þó hún sé núna í öðru liði
Fyrirliði Stjörnunnar um umdeilda atvikið: Þetta er nánast bara 'one in a million'
Stjáni Guðmunds sáttur eftir sigur: Þetta var stórfurðulegur leikur
Óli Kristjáns: Ég vil frekar spila svona og taka ákveðnar áhættur
Pétur: Hef ekki hugmynd hvenær hún spilar
Glenn ósáttur með samskiptin við dómara - „Finnst það ósanngjarnt“
   fim 21. mars 2024 22:40
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Orri Steinn: Þarf ekki endilega mikið magn af stuðningsmönnum
Icelandair
Orri Steinn Óskarsson.
Orri Steinn Óskarsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta er frábær sigur, það er geggjað að vinna og við erum núna mjög spenntir fyrir leiknum á móti Úkraínu," sagði Orri Steinn Óskarsson, sóknarmaður Íslands, eftir magnaðan 4-1 sigur gegn Ísrael í kvöld.

Strákarnir okkar munu á þriðjudaginn spila úrslitaleik við Úkraínu um sæti á Evrópumótinu eftir þennan frábæra sigur í kvöld.

Lestu um leikinn: Ísrael 1 -  4 Ísland

„Ég er fínn, bara glaður að við höfum unnið og svekktur að hafa ekki skorað. Ég er bara mjög glaður að við unnum og það skiptir mestu máli."

Orri fékk algjört dauðafæri í stöðunni 0-0 en setti boltann fram hjá markinu.

„Boltinn kemur einhvern veginn aðeins vinstra megin og ég sparka í minn eigin fót. Það er klaufalegt og ég er svekktur að hafa ekki sett það inn. Það var svekkjandi."

„Ég er glaður við kláruðum þetta og mér fannst frammistaðan mjög góð. Við sýndum að við getum spilað."

Það voru ekki margir íslenskir stuðningsmenn í stúkunni en það heyrðist vel í þeim.

„Það var frábær stemning. Það þarf ekki endilega mikið magn af stuðningsmönnum en það heyrðist vel í þeim. Við þökkum mikið fyrir stuðninginn," sagði Orri sem segist klár í að byrja á þriðjudaginn.
Athugasemdir
banner
banner
banner