Bayern reynir aftur við Walker - Neves til Man Utd?
   þri 21. júlí 2015 10:02
Magnús Már Einarsson
Hvaða framherja er Man Utd að kaupa?
Mynd: Getty Images
Louis van Gaal, stjóri Manchester United, segir að framherji sé á leið til félagsins en fjölmiðla á Englandi hafa ekki hugmynd um hver það er.

„Það er í vinnslu. Þetta er ekki framherji sem fjölmiðlar hafa skrifað um. Þið verðið að bíða og sjá. Glugginn er opinn til 31. ágúst. Þið verðið að bíða," sagði van Gaal.

Wayne Rooney byrjaði frammi í 1-0 sigri á Club America á föstudag en enskir fjölmiðlar hafa undanfarna daga sagt að hann verði fremsti maður United á komandi tímabili.

„Ég hlustaði á ykkur og þess vegna var þetta svona," sagði Van Gaal léttur í bragði við fjölmiðla um þá ákvörðun að hafa Rooney fremst.

„Ég tel að þið hafið meiri vitneskju en ég svo núna spilar Rooney þarna."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner