Bayern reynir aftur við Walker - Neves til Man Utd?
banner
   mið 22. júlí 2015 20:11
Arnar Geir Halldórsson
Heimild: Liverpool 
Christian Benteke til Liverpool (Staðfest)
Christian Benteke skrifar undir samning við Liverpool
Christian Benteke skrifar undir samning við Liverpool
Mynd: Liverpool
Belgíski sóknarmaðurinn Christian Benteke er genginn til liðs við Liverpool.

Þetta var staðfest á heimasíðu félagsins nú rétt í þessu en Benteke stóðst læknisskoðun í London fyrr í dag.

Hann kemur til félagsins frá Aston Villa og er kaupverðið talið vera í kringum 30 milljónir punda.

Benteke hefur spilað með Aston Villa frá árinu 2012 og skoraði 49 mörk fyrir félagið í 101 leik.

Liverpool hefur farið mikinn á leikmannamarkaðnum í sumar en Benteke er sjöundi leikmaðurinn sem gengur í raðir félagsins og er þar með kominn í hóp með þeim Roberto Firmino, Danny Ings, James Milner, Nathaniel Clyne, Adam Bogdan og Joe Gomez.



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner