Bayern reynir aftur við Walker - Neves til Man Utd?
   fös 24. júlí 2015 20:00
Alexander Freyr Tamimi
Terry um nýjan samning Mourinho: „Hræðilegar fréttir“
Terry ber mikla virðingu fyrir Mourinho.
Terry ber mikla virðingu fyrir Mourinho.
Mynd: Getty Images
John Terry, fyrirliði Chelsea, segir að það sé eins og fá nýjan leikmann ef Jose Mourinho framlengir samning sinn við félagið.

Mourinho er sagður vera nálægt því að skrifa undir nýjan samning á Stamford Bridge og segir Terry, sem spilaði hverja einustu mínútu í deildinni í fyrra, að önnur lið ættu að taka illa í þessar fréttir.

„Þetta eru frábærar fréttir fyrir félagið en hræðilegar fyrir alla aðra," sagði Terry við London Evening Standard.

„Aðrir stjórar vita að hann finnur leiðir til að vinna lið, hann þekkir fólk inn og út, innan vallar sem utan. Hvort sem þú ert leikmaður eða stjóri, þá kynnir hann sér þig. Hann veit allt."

„Hann á mörg frábær met gegn öðrum félögum og stjórum, það hlýtur að spila með þá andlega."

„Þegar önnur stórlið fá stóra leikmenn hugsar maður "ohh", en þau hljóta að hugsa það sama þegar Mourinho skrifar undir samning hér."

Athugasemdir
banner
banner
banner