Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
banner
   fim 25. desember 2014 17:45
Alexander Freyr Tamimi
DeAndre Yedlin kemur til Tottenham í janúar
DeAndre Yedlin er á leið til Spurs.
DeAndre Yedlin er á leið til Spurs.
Mynd: Getty Images
Bandaríski varnarmaðurinn DeAndre Yedlin mun ganga til liðs við Tottenham í janúar, hálfu ári áður en upphaflega stóð til.

Lundúnaliðið greindi frá því í janúar að samkomulag hefði náðst við Seattle Sounders um kaupin á Yedlin, sem átti að koma til Tottenham fyrir næsta tímabil.

Nú vill félagið þó fá hann strax í janúar svo hann geti aðlagast deildinni og umhverfinu, en hann er 21 árs gamall hægri bakvörður.

Yedlin var hluti af landsliði Bandaríkjanna á HM í Brasilíu, en hann á tvö tímabil að baki í MLS deildinni og hefur verið í stjörnuliði deildarinnar bæði árin.
Athugasemdir
banner
banner
banner