The Guardian greinir frá því í dag að Tottenham, Leicester og Liverpool séu á meðal félaga í ensku úrvalsdeildinni sem hafa áhuga á Ragnari Sigurðssyni.
Tottenham og Leicester hafa rætt við umboðsmann Ragnars en Liverpool hefur einnig áhuga.
Ragnar hefur farið á kostum í EM í Frakklandi og ljóst er að rússneska félagið Krasnodar mun fá mörg tilboð í hann á næstunni.

Schalke og Wolfsburg vilja einnig fá Ragnar í sínar raðir en leikmaðurinn hefur sjálfur meiri áhuga á að fara til Englands.
Ragnar hefur verið stuðningsmaður Liverpool frá æsku og hefur áður sagt að draumur sinn sé að fara til félagsins einn daginn.
Samkvæmt frétt Guardian mun Ragnar kosta í kringum fimm milljónir evra eða 4,1 milljón punda.
Sjá einnig:
Raggi spilar alltaf vel fyrir Ísland
Athugasemdir