mán 05.sep 2011 08:00
Elvar Geir Magnússon

Óhætt er að segja að gósentíð sé hjá íslenskum fótboltaáhugamönnum hvað varðar leigubílasögur. Ljóst er að Ólafur Jóhannesson mun láta af störfum sem landsliðsþjálfari eftir undankeppnina og eru ýmsar getgátur og sögusagnir á lofti um hver muni taka við keflinu.
Meira »
mán 29.ágú 2011 09:00
Sammarinn.com

Manchester United vann yfirburðarsigur á lærisveinum Arsene Wenger á Old Trafford í gær. Öllum ættu að vera ljós úrslitin enda brandarinn ,,I 8-2 be an Arsenal fan today" nú þegar orðinn gamall brandari.
Meira »
fös 26.ágú 2011 11:25
Mist Rúnarsdóttir

Kollegi minn hann Hafliði Breiðfjörð skrifaði pistil hér á síðuna fyrr í vikunni sem ber yfirskriftina „Af hverju ekki að fá raunverulega áhorfendur á völlinn“. Þar veltir hann því fyrir sér af hverju miðaverð í Pepsi-deild karla sé ekki lækkað til þess að fá fleiri áhorfendur á völlinn. Mér þykir þetta góður punktur hjá Hafliða og er handviss um þéttar verði setið í stúkunni ef dregið verður úr miðaverði.
Meira »
þri 23.ágú 2011 10:15
Hafliði Breiðfjörð

Það voru 480 áhorfendur á Laugardalsvelli í gær sem sáu Fram vinna 3-1 sigur á Val. Ekki 846 eins og Framarar gáfu upp til fjölmiðla og í leikskýrslu á vef KSÍ.
Meira »
fös 12.ágú 2011 15:23
Sigurjón Jónsson

Eitt erfiðasta hlutskipti mitt í lífinu undan farin ár er að vera Newcastle stuðningsmaður. Mikið hefur verið rætt um hversu erfitt það hefur reynst Liverpool mönnum að styðja sitt lið en það kemst ekki í hálfkvist við þá þjáningagöngu sem við Newcastle menn erum að ganga í gegnum. Ég hef á tilfinningunni að eigendur Nufc sé vísvitandi að eyðileggja einn stærsta og flottasta klúbb Englands.
Meira »
þri 26.júl 2011 18:00
Hafliði Breiðfjörð

Fjölmiðlar eru oft gagnrýndir en sjaldan eins mikið og þegar kemur að umfjöllun um kvennaknattspyrnu sem þykir lítil miðað við annað. Vissulega er rétt að minna sé fjallað um kvennaknattspyrnu en aðra knattspyrnu en áhuginn á að bæta úr því verður líka að koma frá félögunum sjálfum.
Meira »
þri 19.júl 2011 11:00
Bjarni Þór Pétursson

Undirritaður varð þess heiðurs aðnjótandi að spila knattspyrnu undir stjórn taktíska snillingsins Ásgeirs Elíassonar og auk þess fleiri goðsagna frá síðustu gullöld í sögu Knattspyrnufélagsins Fram (Pétur Ormslev, Guðmundur Torfason og Kristinn R. Jónsson).
Meira »
þri 05.júl 2011 09:30
Sam Tillen

Þetta tímabil hefur alls ekki byrjað eins og við bjuggumst við hjá Fram. Ég bjóst við að við myndum að minnsta kosti berjast um Evrópusæti en núna erum við í erfiðri stöðu. Um leið og við náum í okkar fyrsta sigur er ég viss um að sjálfstraustið mun koma aftur en það eru mikil vonbrigði að fyrsti sigurinn sé ekki ennþá kominn. Frammistaða okkar í deildinni hefur batnað að undanförnu og við höfum verið óheppnir að ná einungis í 2 stig hingað til. Við höfum ekki verið yfirspilaðir í neinum leik hingað til og við höfum verið að tapa naumlega. Mér fannst leikir okkar gegn KR og Breiðablik vera góðir en leikurinn gegn FH eyðilagðist í fyrri hálfleik út af vindinum. Toddi hefur verið að hvetja okkur til að halda áfram að reyna að spila og hann hefur gert sitt besta í að taka alla pressu af okkur. Mér fannst við við spila sérstaklega vel í síðari hálfleiknum í Kópavogi og við hefðum getað unnið þar. Úrslitin gegn Þrótti voru mikil vonbrigði og í raun vandræðaleg en eftir þessi úrslit og lélega byrjun okkar held ég að flestir séu búnir að afskrifa okkur. Núna er tími til kominn að sýna liðsanda og að við höfum hæfileika til að snúa þessu við.
Meira »
fim 30.jún 2011 12:00
Alexander Freyr Tamimi

Menn kunna að segja að ég sé að ýkja stórlega þegar ég segi að leikur KR og ÍF Fuglafjarðar í undankeppni Evrópudeildarinnar í kvöld sé einn mikilvægasti leikur íslenskrar knattspyrnusögu, en ég segi það samt.
Meira »
fim 30.jún 2011 11:00
Óli Stefán Flóventsson

Það er gott að búa í Reykjavík söng Haukur Morthens eitt sinn. Það má vel vera að það hafi verið rétt hjá honum þó svo að ég sé ekki endilega sammála honum. Ég bý núna og hef búið síðustu tæp tvö ár í Höfn á Hornafirði. Hvar er Hornafjörður spyrja sjálfsagt ansi margir sig en Hornafjörður liggur á suðausturhorni Íslands. Þangað eru 442 km frá Reykjavík og á góðum degi ef þið keyrið á 90 km hraða eruð þið um 5 tíma að keyra hingað með einu stoppi.
Meira »
fim 30.jún 2011 07:10
Ingibjörg Hinriksdóttir
„Það eru stöðugt fleiri og fleiri þjóðir sem hafa náð góðum árangri í knattspyrnu kvenna og ég tel líklegt að í það minnsta helmingur þeirra þjóða sem hér taka þátt geri sér raunhæfa möguleika á að vinna titilinn."
Meira »
mið 29.jún 2011 12:30
Sigmundur Ó. Steinarsson

Íslenska landsliðið í knattspyrnu hefur oft verið Íslendingum hugleikið og hafa menn glaðst þegar vel hefur gengið. Einn af gleðidögunum var 29. júní 1951, eða fyrir 60 árum – þegar Svíar voru lagðir að velli á Melavellinum, 4:3. Skagamaðurinn Ríkharður Jónsson vann það afrek að skora öll fjögur mörkin og hann gerði gott betur – skoraði fimmta markið, sem var dæmt af þó löglegt væri.
Meira »
mið 29.jún 2011 08:00
Ingibjörg Hinriksdóttir

Saga HM kvenna er ansi merkileg. Fyrsta opinbera heimsmeistarakeppnin fór fram í Kína árið 1991 en þá léku stúlkurnar 2x40 mínútur. Fyrstu heimsmeistararnir voru Bandaríkjamenn, Noregur varð í 2. sæti og Svíþjóð í því þriðja.
Meira »
sun 26.jún 2011 09:26
Magnús Þór Jónsson

Nú eru línur aðeins farnar að skýrast í íslenskum fótbolta og kannski ekki úr vegi aðeins að líta á það sem er að baki áður en rýnt er í næstu skref. Karlapistillinn fyrst og svo stelpurnar á næstunni.
Meira »
lau 25.jún 2011 10:00
Elvar Geir Magnússon

Andre Villas-Boas var í vikunni ráðinn knattspyrnustjóri Chelsea aðeins 33 ára að aldri. Þessi athyglisverði maður var kallaður litla gulrótin þegar hann lék í utandeild Portúgals sem unglingur.
Meira »
lau 18.jún 2011 14:10
Matthías Freyr Matthíasson

Það er laugardagurinn 29 september 1996. Ég stend í girðingunni við Akranesvöll, takið eftir að ég segi að ég standi Í girðingunni. Ég öskra og æpi og fagna ásamt gríðarlegum fjölda fólks, örugglega einum þeim mesta fjölda sem saman hefur komið á Akranesi.
Meira »
fim 16.jún 2011 19:40
Einar Matthías Kristjánsson
Meira »
þri 14.jún 2011 09:00
Daníel Geir Moritz

Ég æfði fótbolta í 10 ár. Þrátt fyrir að hafa alla tíð leikið með litlu liði utan að landi tókst mér að leika með prýðis leikmönnum. Þeirra þekktastur er Eggert Gunnþór Jónsson, vormaður, A-landsliðsmaður og atvinnumaður í Skotlandi.
Meira »
þri 14.jún 2011 07:00
Sigmundur Ó. Steinarsson

Til að ná árangri á knattspyrnuvellinum eiga menn aldrei að efast um eigin styrk og getu - knattspyrnumenn mega aldrei hika, gefa eftir eða láta andstæðinginn stjórna ferðinni: Bíða eftir og sjá hvað andstæðingurinn gerir. Það er að sjálfsögðu gott að ganga hægt um gleðinnnar dyr, en þá má þó ekki hika of mikið og ætla sér að bíða og sjá hvað gerist.
Meira »
fös 10.jún 2011 11:00
Elvar Geir Magnússon

Eftir að hafa horft á á fótboltaleik á Suðurnesjum í hávaðaroki og nístingskulda í gærkvöldi sit ég nú kófsveittur í lest á leið til Álaborgar. Næstu daga verður fylgst grannt með móti sem íslenskir fótboltaunnendur hafa beðið eftir með mikilli eftirvæntingu í nokkurn tíma.
Meira »