Hér með lýkur þessari textalýsingu hjá okkur. Við þökkum fyrir samfylgdina í gegnum daginn. Við hvetjum ykkur áfram - lesendur góðir - til að fylgjast með síðunni en þar koma allar stærstu félagaskiptafréttirnar inn.
Takk fyrir og gleðilega helgi!
Mynd: Fótbolti.net
21:58Mason Greenwood til Getafe (Staðfest)
Stórar fréttir!
???? ???????????????????????????? | Mason Greenwood nuevo futbolista azulón
"Ég veit nákvæmlega hvernig Erik ten Hag vill vinna sína vinnu og hvers hann þarfnast frá leikmönnum sínum. Hann hjálpaði mér svo mikið að þróast fyrr á ferli mínum. Ég veit að hann mun hjálpa að ná því besta út úr mér svo ég geti hjálpað hópnum að ná árangri á þessu tímabili," segir Sofyan Amrabat, nýjasti leikmaður Manchester United.
Hann og Erik ten Hag, stjóri liðsins, unnu saman hjá Utrecht í Hollandi fyrir mörgum árum síðan.
Mynd: EPA
Erik ten Hag.
21:40Chelsea lánar Diego Moreira
Fer til Lyon í Frakklandi. Hann gekk til liðs við Chelsea frá Benfica í sumar, 19 ára gamall kantmaður.
Þessir þrír leikmenn koma nýir inn og geta spilað með liðinu gegn Arsenal á sunnudaginn.
Mynd: Getty Images
21:36Möguleg kaup á Salah enn á lífi
Simon Stone, fréttamaður BBC, segir að möguleg kaup Al-Ittihad frá Sádi-Arabíu á Mohamed Salah séu enn á lífi. Glugginn í Sádí er opinn þangað til 7. september og er ekki óhugsandi að það berist 200 milljón punda tilboð í Salah. Þá verður erfitt fyrir Liverpool að hafna því.
Mynd: Getty Images
21:35Lokonga í Luton (Staðfest)
Albert Sambi Lokonga, sem var á vellinum í kvöld, er genginn í raðir Luton Town á láni frá Arsenal. Fín styrking fyrir Luton sem hefur farið erfiðlega af stað á tímabilinu, eins og kannski var búist við.
Mynd: Heimasíða Arsenal
21:32Hæstánægður
Það er óhætt að segja að nýjasti leikmaður Man Utd sé hæstánægður með skiptin.
"Það er mikill heiður að gerast leikmaður Manchester United. Ég hef þurft að vera þolinmóður en ég hlusta alltaf á hjarta mitt og núna er ég fulltrúi félags drauma minna," segir Amrabat.
Man Utd borgar 8,5 milljónir punda til þess að fá Amrabat á láni frá Fiorentina og svo á félagið þann möguleika að kaupa hann fyrir 21,4 milljónir punda.
Var orðaður við mörg félög í dag en miðvörðurinn verður áfram í herbúðum Chelsea.
Mynd: EPA
21:20Er að gerast!
Núna segir David Ornstein að Mason Greenwood sé að ganga í raðir Getafe á láni og þá er hægt að bóka að það muni gerast.
Mynd: Getty Images
21:20Allt klárt með Brennan Johnson
Hann er orðinn leikmaður Tottenham. Kaupverðið: 47,5 milljónir punda. Við bíðum bara eftir (Staðfest) frá Spurs.
Mynd: Getty Images
21:12Daka fer ekki til Bournemouth
Það voru viðræður í gangi um lánssamning en það er núna búist við því að hann verði áfram hjá Leicester.
Mynd: EPA
21:10Lok, lok og læs í Frakklandi
Það er búið að loka félagaskiptaglugganum í Frakklandi en það er samt sem áður búist við því að Randal Kolo Muani verði leikmaður PSG. Það á bara eftir að tilkynna það.
???? Been told Randal Kolo Muani is a new player of Paris Saint-Germain now! #PSG
?? DONE DEAL ?? All documents signed and registered in the last minutes ?? Contract until 2028 ?? Transfer fee: €95m with add-ons included! #SGE@SkySportDE ???????? pic.twitter.com/n94gMm2X2k
Fabrizio Romano er að segja frá því að Ian Maatsen ætli að vera áfram hjá Chelsea þrátt fyrir að hafa fengið tilboð frá Burnley í dag. Maatsen var á láni hjá Burnley á síðustu leiktíð en ætlar að berjast um sæti sitt hjá Chelsea.
Mynd: Getty Images
21:05Meðal þess sem á enn mögulega eftir að gerast:
- Bournemouth er að vinna í því að fá Luis Sinisterra - Rob Holding er að fara til Crystal Palace - Burnley vonast til að landa Ian Maatsen frá Chelsea - Tottenham er að kaupa Brennan Johnson frá Nottingham Forest - Forest er að fá Omobamidele, Origi, Sangare og Vlachodimos - Manchester United er að landa Sofyan Amrabat - Brentford krækir í Neal Maupay frá Everton - Wolves er að fá miðjumanninn Jean-Ricner Bellegarde - Alex Iwobi er á leið til Fulham - Mason Greenwood til Getafe?
Mynd: Getty Images
21:02Klukkutími eftir
Það er núna einn klukkutími eftir af glugganum á Englandi og á fleiri stöðum í Evrópu. Félög geta áfram keypt leikmenn ef þau hafa skilað inn réttum pappírum fyrir gluggalok, og hafa þau þá ákveðinn langan tíma til að ganga frá félagaskiptunum.
20:57Barcelona þakkar Cancelo
Í yfirlýsingu sinni vegna félagaskipta Joao Cancelo þá þakkar Barcelona leikmanninum fyrir að taka launalækkun, hann hafi mikinn vilja til að spila fyrir Barcelona.
Mynd: Getty Images
20:56West Ham á toppinn
West Ham var að skella sér á topp ensku úrvalsdeildarinnar með 1-2 sigri á Luton á útivelli. Luton hótaði því að jafna í lokin og áttu líklega að fá vítaspyrnu, en ensku dómararnir eru óútreiknanlegir.
Bakvörðurinn Alvaro Odriozola (til hægri á myndinni) hefur yfirgefið Real Madrid og er orðinn leikmaður Real Sociedad á samningi til ársins 2029.
Mynd: Getty Images
20:44Klappað og klárt!
Gravenberch er mættur til Liverpool og skrifar undir fimm ára samning. Kaupverðið er allt að 45 milljónir evra. Leikmaðurinn verður í treyju númer 38 hjá nýju félagi.
"Ég er mjög ánægður að þetta sé loksins klárt," segir miðjumaðurinn.
Mynd: Liverpool
20:37Ryan Gravenberch í Liverpool (Staðfest)
Mynd: Liverpool
20:36Nice reynir við Lloris
Nice hefur boðið Hugo Lloris samning eftir að hafa rift við Kasper Schmeichel.
Mynd: EPA
20:34Ekitike verður áfram
Núna er sagt frá því að Ekitike verði áfram hjá PSG en samt er búist við því að Kolo Muani komi til félagsins. Fyrr í kvöld var því haldið fram að PSG þyrfti að selja Ekitike til að fá Kolo Muani en Parísarfélagið hefur fundið einhverja leið.
Mynd: EPA
20:30Hversu góður var hann á HM?
Sofyan Amrabat er orðinn leikmaður Manchester United. Við bíðum bara eftir tilkynningu. Hann kemur með kraft og seiglu inn á miðsvæði sem þarf á því að halda. Þetta er leikmaður sem var einn sá besti á HM í Katar og hjálpaði Marokkó að komast í undanúrslitin.
20:29Frá Southampton til Eindhoven
Miðvörðurinn Armel Bella-Kotchap er að ganga í raðir PSV Eindhoven á láni frá Southampton.
Mynd: EPA
20:28Felix framlengdi áður en hann fór
Joao Felix framlengdi samning sinn við Atletico Madrid til 2029 áður en hann var lánaður til Barcelona. Mér finnst eitthvað furðulegt við það í ljósi þess hve illa hefur gengið hjá honum í Madríd.
Mynd: Getty Images
20:26
Það er fátt skemmtilegra í þessu vonda veðri en að vera upp í sófa að fylgjast með enska boltanum og fréttum af gluggadegi. Það er enn nóg eftir hér í kvöld!
20:16Greenwood færist nær Getafe!
Áhugavert, vægast sagt. Spænskir fjölmiðlar farnir að staðfesta tíðindin og segja að Greenwood verði leikmaður Getafe sem er í spænsku úrvalsdeildinni.
Mynd: Getty Images
20:14Nottingham Forest, maður lifandi
Heyrðu, Nottingham Forest lætur ekki þrjá leikmenn nægja. Markvörðurinn Odisseas Vlachodimos er einnig að koma frá Benfica. Þeir eru fjórir að koma áður en glugginn lokar.
Auðvelt að gleyma því að hann sé enn leikmaður Manchester United. Það hefur verið talað um Lorient og Luton, en virðist ekkert vera að gerast með það. Kannski fer hann til Sádi-Arabíu þegar glugginn á Englandi lokar?
Mynd: Getty Images
19:48Spáir því að Johnson verði aðalmaðurinn í Tottenham
Mark Schwarzer, fyrrum markvörður í ensku úrvalsdeildinni, var í viðtali á BBC og ræddi þar meðal annars um um Brennan Johnson sem er að fara frá Nottingham Forest til Tottenham.
"Það verður mikill missir af honum hjá Nottingham Forest. Hann fer kannski ekki beint í byrjunarliðið hjá Tottenham en hann mun spila stórt hlutverk í liðinu... ég held að á endanum verði hann aðalmaðurinn í liðinu," segir Schwarzer.
Mynd: Getty Images
19:46Sinisterra er í læknisskoðun
Er líklega að skipta yfir til Bournemouth frá Leeds. Er búinn að vera í fýlu alveg frá því að Leeds féll úr ensku úrvalsdeildinni.
Mynd: Getty Images
19:46Það fer að koma tilkynning!
Ryan Gravenberch has just signed the contract as new Liverpool player! ???????? pic.twitter.com/3xtLX3KyEu
Meira af reyndum markvörðum. Newcastle er víst á eftir Hugo Lloris sem má yfirgefa herbúðir Tottenham. Lloris myndi þá fara í samkeppni við Nick Pope.
Mynd: EPA
19:35Schmeichel yfirgefur Nice (Staðfest)
Danski landsliðsmarkvörðurinn núna án félags eftir að hann og franska félagið komust að sameiginlegri niðurstöðu um riftun. Hann hefur verið orðaður við FC Kaupmannahöfn í heimalandinu.
???? OFFICIAL#OGCNice and @kschmeichel1 have decided by mutual consent to terminate the contract of the Danish international.
Samkvæmt John Cross hjá Mirror þá er Getafe á Spáni að reyna að fá Mason Greenwood frá Manchester United áður en glugginn lokar.
Mynd: Getty Images
19:24
Tottenham er víst núna að reyna að fá miðvörðinn Trevoh Chalobah á láni frá Chelsea. Það er áhugavert í ljósi þess að það er mikill rígur á milli félaganna. Nottingham Forest hefur einnig áhuga Chalobah.
Mynd: Getty Images
19:22Amrabat búinn í læknisskoðun
Og það styttist í (Staðfest). Hann er að verða leikmaður Manchester United! Annars er það að frétta hjá United að bakvörðurinn ungi Alvaro Fernandez er á leið til Granada í spænsku úrvalsdeildinni.
Mynd: EPA
19:14Launalækkun
Joao Cancelo er sagður hafa tekið á sig mikla launalækkun til að fara til Barcelona.
Mynd: Getty Images
19:10Gallagher ekki til Tottenham
Miðjumaðurinn Conor Gallagher var orðaður við Spurs fyrr í dag en hann fer ekki þangað. Chelsea var að biðja um sirka 50 milljónir punda fyrir leikmanninn sem er kannski aðeins of mikið.
Mynd: EPA
19:08Búinn að vera bíða eftir græna ljósinu
Kolo Muani þarf ekki að fara langt til að klára félagaskiptin sín. Hann er búinn að vera í höfuðstöðvum PSG í dag að bíða eftir því að fá grænt ljós til að klára skiptin.
Mynd: EPA
19:06Juan Mata á ferðinni
Langt síðan maður hefur heyrt það nafn! Hann er á leið til Vissel Kobe í Japan.
Mynd: EPA
19:03Soumare til Sevilla (Staðfest)
Miðjumaðurinn Boubakary Soumare hefur gengið til liðs við Sevilla á Spáni á láni frá Leicester.
???? Acuerdo con el @LCFC para la llegada de Boubakary Soumaré. ????????
Jæja, áhugavert! Ég verð þó að viðurkenna að ég hef litla sem enga trú á þessum leikmanni. En eitthvað að gerast hjá Barcelona sem mun fá hann á láni með engum kaupmöguleika.
Felix talaði um það fyrr í sumar að það væri draumur sinn að spila fyrir Barcelona. Hann er ósáttur í herbúðum Atletico.
Mynd: Getty Images
18:24Frekar rólegt þessa stundina
Glugginn lokar eftir um þrjá og hálfan tíma. Staðan er rólegt en það er mest að gera á skrifstofu Nottingham Forest sem á mögulega eftir að fá þrjá leikmenn til viðbótar. Miðjumaðurinn Ibrahima Sangare er á leiðinni og það sama á við um sóknarmanninn Divock Origi.
Þá hefur félagið gert tilboð í Andrew Omobamidele, miðvörð Norwich. Nóg að gera í Nottingham!
EXCL: Nottingham Forest preparing an opening bid for Andrew Omobamidele as new CB ???????????????? #NFFC
Glugginn á Ítalíu búinn að loka og félagaskiptin fóru ekki í gegn. Hvað verður um Mason Greenwood?
Mynd: Getty Images
18:15Inter kaupir Davy Klaassen frá Ajax (Staðfest)
Goðsögn hjá Ajax sem floppaði hjá Everton á sínum tíma.
Mynd: Inter
18:13Luton að fá lánsmann frá Arsenal
Luton er að spila í kvöld, en þeir eru líka að krækja í leikmann. Fabrizio Romano segir að félagið sé að fá Albert Sambi Lokonga, miðjumann, á láni frá Arsenal.
Albert Sambi Lokonga joins Luton Town on loan from Arsenal, deal agreed — here we go ???????????? #DeadlineDay
Núna geta félög á Ítalíu ekki lengur keypt leikmenn. Ég er persónulega spenntur fyrir því að fylgjast með sambandi Jose Mourinho og Romelu Lukaku, en síðarnefndi er mættur til Roma á láni. Nær hann að endurvekja feril sinn?
Mynd: Getty Images
17:41Áhugaverðar vendingar
Sagan segir að möguleg kaup PSG á Kolo Muani velti mikið á framherjanum Hugo Ekitike, sem er á mála hjá PSG.
Franska félagið vill að Ekitike, sem er 21 árs, fari til Frankfurt á móti en leikmaðurinn er ekki sagður spenntur fyrir því. Hann er mun spenntari fyrir enska boltanum og segir Telegraph að hann hafi náð samkomulagi við Crystal Palace án þess að fá leyfi frá PSG.
Ef Ekitike fer ekki til Frankfurt, þá gæti það hindrað það að Kolo Muani fari til Parsíar og það er ákveðinn pirringur hjá PSG með stöðu mála.
Mynd: Getty Images
17:39Endar Kolo Muani í París?
Paris Saint-Germain er enn að vonast til að landa franska landsliðsframherjanum Randal Kolo Muani frá Eintracht Frankfurt en það eru ákveðin flækjustig sem þarf að leysa. Ef kaupin ganga í gegn þá kemur Kolo Muani til með að kosta í kringum 90 milljónir evra.
Mynd: EPA
17:38Ekki á leið til Atletico eins og er
Eins og staðan er núna þá er útlit fyrir það að danski miðjumaðurinn Pierre-Emile Højbjerg verði áfram hjá Tottenham þó hann sé ekki ofarlega í plönum Ange Postecoglou. Viðræður Spurs og Atletico Madrid ganga illa.
Mynd: Getty Images
17:29Kaupa leikmann frá mótherjum Breiðabliks
Sunderland var að kaupa framherjann Nazariy Rusyn frá Zorya Luhansk í Úkraínu, sem spilar við Breiðablik í riðlakeppni Sambandsdeildarinnar. Blika eru einnig í riðli með Gent og Maccabi Tel Aviv.
??????? ???????, ????? ????????
We are delighted to announce that an agreement has been reached with Zorya Luhansk for the transfer of Nazariy Rusyn for an undisclosed fee.#SAFC
17:28Ætlar Kalvin Phillips að sitja áfram á bekknum?
Það heyrist ekkert af Kalvin Phillips. Svo virðist sem hann ætli sér bara að sitja áfram á bekknum hjá Manchester City. Það virðist svo sem ekki skipta máli fyrir Gareth Southgate, landsliðsþjálfara Englands, sem velur hann alltaf í landsliðið.
Mynd: Getty Images
17:15Ekki sexan sem Liverpool þarf á að halda
Jamie Carragher, fyrrum varnarmaður Liverpool, hefur verið að tjá sig um Ryan Gravenberch.
"Það verður áhugavert að sjá hvernig hann passar inn í liðið en ég held ekki að hann sé sexan sem Liverpool þarf; hann er átta og fer á milli teiga. Hann er leikmaður sem Liverpool vildi fá fyrir 12 til 18 mánuðum síðan og það verður áhugavert að sjá hvernig hann passar. Hann er ungur og á flottan feril hingað til. Hann er líka ekki það dýr."
Gravenberch er að ganga í raðir Liverpool frá Bayern München fyrir allt að 45 milljónir evra.
Mynd: Getty Images
17:14Bournemouth reynir að fá Daka
Sóknarmaðurinn hefur ekki náð að heilla hjá Leicester frá því hann var keyptur þangað fyrir 23 milljónir punda frá Red Bull Salzburg fyrir tveimur árum. Bournemouth er að reyna að fá hann á láni.
Mynd: Getty Images
17:06Mbabu til Augsburg á láni (Staðfest)
Svissneski bakvörðurinn Kevin Mbabu er farinn frá Fulham til þýska úrvalsdeildarfélagsins Augsburg á láni.
Mynd: Fulham
17:03Átti að verða stjarna
Hudson-Odoi lék sinn fyrsta leik með Chelsea árið 2018 og var á sínum tíma ein mesta vonarstjarna Englands. Bayern München hafði gríðarlega mikinn áhuga á því að kaupa hann en Chelsea hafnaði stórum tilboðum í hann.
Ferill kantmannsins hefur hins vegar staðnað alveg hrikalega en nýtt upphaf hjá Forest gæti hjálpað honum. Hann fer til Forest á 8 milljónir punda og skrifar undir þriggja ára samning.
Mynd: Nottingham Forest
17:02
Hudson-Odoi er mættur til Forest. Origi er líka á leiðinni þangað en serbneski sóknarmaðurinn Luka Jovic mun fylla í skarð Origi hjá AC Milan. Hann kemur til Mílanó á láni frá ítalska félaginu Fiorentina.
Það er leikur í ensku úrvalsdeildinni í kvöld, þó það sé gluggadagur. Luton Town spilar sinn fyrsta heimaleik á tímabilinu er þeir mæta West Ham.
Félagarnir Gary Neville og Jamie Carragher eru mættir á völlinn en það er óhætt að segja að heimavöllur Luton sé áhugaverður. Hann er í miðju íbúðahverfi og er afar lítill.
Jorge Mendes, umboðsmaður Joao Cancelo og Joao Felix, er á skrifstofu Barcelona að ræða málin. Barcelona er að reyna að fá þessa tvo leikmenn áður en glugginn lokar en það er erfitt út af fjárhagsvandræðum félagsins.
Miðjumaðurinn Joao Palhinha er ekki að fara til Bayern München, það er ljóst. Hann var búinn að fara í læknisskoðun í Þýskalandi en það gekk ekki hjá Fulham að finna mann í staðinn fyrir portúgalska landsliðsmanninn.
Það eru frábærar fréttir fyrir Lundúnafélagið að Palhinha verði áfram - þar sem hann er frábær leikmaður - en það er spurning hversu mikið hann mun svekkja sig á þessu.
Mynd: Getty Images
16:40Amrabat í læknisskoðun
Manchester United hefur bætt við sig tyrkneska miðverðinum Altay Bayindir og miðverðinum Jonny Evans í dag. Það er svo einn leikmaður til viðbótar á leiðinni, miðjumaðurinn Sofyan Amrabat er að koma á láni frá Fiorentina. Hann er núna í læknisskoðun á Ítalíu.
Mynd: Getty Images
16:38Kannski ekki fréttir sem maður bjóst við í byrjun sumars
"Ég er hæstánægður að ganga til liðs við Manchester United, félags sem hefur alltaf verið eins og heimili mitt."
Jonny Evans hefur skrifað undir eins árs samning við Man Utd, uppeldisfélag sitt. Þetta eru kannski ekki fréttir sem maður bjóst við í byrjun sumars, að hinn 35 ára gamli Evans myndi snúa aftur til United eftir að hafa fallið með Leicester á síðasta tímabili.
Mynd: Man Utd
16:37Jonny Evans skrifar undir eins árs samning (Staðfest)
Mynd: Man Utd
16:35Origi að snúa aftur til Englands
Belgíski sóknarmaðurinn Divock Origi er sagður vera á leið til Nottingham Forest. Engin frægðarför hjá þessum fyrrum leikmanni Liverpool til AC Milan en hann er núna líklega að snúa aftur til Englands.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
16:33Kvöldvaktin mætt til starfa
Já, komiði sælir kæru lesendur, kvöldvaktin heilsar. Það er tæplega fimm og hálfur tími eftir af glugganum á Englandi. Vonandi fáum við eitthvað fjör áður en skellt verður í lás!
16:27Stytting vinnuvikunnar?
Elvar Geir segir þetta gott í bili, búinn að vera á gluggavaktinni síðan 7 í morgun. Guðmundur Aðalsteinn tekur við boltanum, er búinn að setja á sig gula bindið og fylgir ykkur til gluggaloka.
16:26Palhinha klúðrið hefur ekki áhrif á Gravenberch, hann er enn á leið til Liverpool
Sources confirm Ryan Gravenberch deal should be and will be fine despite the incredible tournaround with João Pahlinha ???????? #LFC
16:25Fróðlegt að sjá hvernig málin þróast með Palhinha
Það leit allt út fyrir að hann væri að fara til Bayern München frá Fulham en nú er útlit fyrir að hlutirnir hafi ekki gengið að óskum. Verður Palhinha áfram hjá Fulham? Maður getur ímyndað sér að hann verði svekktur ef hann fær ekki skiptin til Bæjara.
16:22Keinan Davis til Udinese (Staðfest)
Sóknarmaðurinn Keinan Davis hefur yfirgefið Aston Villa en hann er kominn til ítalska félagsins Udinese.
Davis hefur verið lánaður frá Villa síðustu tímabil, til Forest og Watford, en er nú kominn til Ítalíu.
Davis er 25 ára og verið hjá Villa síðan hann var 18 ára gamall.
Mynd: Getty Images
16:16Nicolas Dominguez krotar undir
Mynd: Nottingham Forest
16:13Palhinha ekki til Bayern???
Ef Bayern München fær ekki Palhinha frá Fulham, er þá félagið tilbúið að láta Ryan Gravenberch til Liverpool án þess að fá mann í staðinn?
16:12Bíddu bíddu bíddu, þetta er áhugavert
João Palhinha completed two round of medical tests, took pictures in Bayern shirt but deal is currently collapsing ?? #DeadlineDay
Middlesbrough hefur fengið vinstri bakvörðinn Alex Bangura frá hollenska B-deildarliðinu Cambuur. Þessi 24 ára leikmaður er landsliðsmaður Síerra Leóne. Michael Carrick stjóri Boro segist spenntur fyrir þessum leikmanni, hann sé flottur karakter sem smellpassar inn í hópinn.
Hljómar ansi hreint vel!
16:09Glugganum í Þýskalandi hefur verið lokað!
Þjóðverjarnir farnir á Gleðistund. Ítalska glugganum verður lokað klukkan 18, franska klukkan 21 og þeim spænska og enska klukkan 22.
16:07Galatasaray vill Ndombele.
Galatasaray vill fá Tanguy Ndombele frá Tottenham. Það liggur ekkert á hinsvegar, glugganum í Tyrklandi verður lokað þann 15. september.
16:06Hver er Nicolas Dominguez?
Nicolas Dominguez er miðjumaður sem kemur frá Bologna og skrifaði undir fimm ára samning við Nottingham Forest. Remo Freuler fer öfuga leið. Dominguez, 25 ára, er argentínskur landsliðsmaður sem á ellefi landsleiki. Á síðasta tímabili spilaði hann 34 leiki og skoraði þrjú mörk fyrir Bologna sem rétt missti af Evrópusæti.
16:04Nicolas Dominguez til Forest (Staðfest)
Nottingham Forest is delighted to announce the signing of Nicolás Domínguez on a five-year deal ??#NFFC | #WelcomeNicolás ????????
Tottenham hefur staðfest að félagið sé búið að lána Japhet Tanganga til þýska félagsins Augsburg.
15:27Besta í glugganum að halda Olise
Mynd: Getty Images
Ákvörðun Michael Olise að gera nýjan samning við Crystal Palace var hápunktur sumargluggans hjá félaginu. Þetta segir stjórinn Roy Hodgson.
15:22Segja að Maatsen muni hafna Burnley og verði áfram hjá Chelsea
Telegraph fjallar um það rétt í þessu að Ian Maatsen, sem virtist á leið til Burnley á láni, muni hafna því að ganga í raðir félagsins. Maatsen ætlar sér að berjast fyrir sæti í hópnum hjá Chelsea.
15:14Nkounkou frá St Etienne for Eintracht Frankfurt (Staðfest)
„Í lífinu þarftu að vera tilbúinn undir allt og ég gat ekki hafnað því að spila fyrir þetta frábæra félag. Ég er búinn að ræða við stjórann og veit hvers er krafist af mér. Ég er tilbúinn að sýna fólki hvers ég er megnugur," segir Reguilon.
15:08Erik ten Hag og Sergio Reguilon
Mynd: Getty Images
15:01Reguilon til Man Utd (Staðfest)
??????????????
Sergio Reguilon has signed up for the 2023/24 season! ????#MUFC
Ibrahim Sangare er á leið í læknisskoðun hjá Nottingham Forest eftir að félagið náði samkomulagi við PSV Eindhoven um 30 milljóna punda kaupverð. Sangare er 25 ára varnartengiliður frá Fílabeinsströndinni.
14:50Al Ittihad tilbúið að borga 200 milljónir punda fyrir Salah
Mynd: Getty Images
Heimildarmaður Sky Sports News segir að Al-Ittihad í Sádi-Arabíu sé tilbúið að borga 200 milljónir punda fyrir Mohamed Salah. Liverpool hefur hafnað 150 milljóna punda tilboði og Liverpool segir hann ekki til sölu.
14:47Alex Iwobi er á leið frá Everton til Fulham
Mynd: Getty Images
14:45James McAtee til Sheffield United á láni (Staðfest)
Miðjumaðurinn James McAtee er genginn í raðir Sheffield United á láni frá Manchester City að nýju. Hann skoraði 9 mörk í 43 leikjum fyrir Sheffield á síðasta tímabili.
Burnley er að fá Ian Maatsen í sínar raðir frá Burnley. Frá þessu greinir Telegraph í dag.
Maatsen er sóknarsinnaður vinstri bakvörður sem var á láni hjá Burnley í fyrra. Hann á eitt ár eftir af samningi sínum við Chelsea. Eftir að möguleg skipti Marc Cucurella til Man Utd féllu upp fyrir sig opnaði Chelsea á þann möguleika að Maatsen færi frá félaginu.
14:40Andy Carroll er kominn til Amiens í frönsku B-deildinni (Staðfest)
???? [MERCATO] L’attaque amiénoise prend de la hauteur ! ????
Paul Merson, sparkspekingur og fyrrum miðjumaður Arsenal, ræddi við Sky Sports um stöðu mála hjá Mohamed Salah. Al-Ittihad í Sádi-Arabíu býður gull og græna skóga en Liverpool vill ekki selja þennan lykilmann.
Búast má við því að málið verði í gangi næstu vikurnar því glugganum í Sádi-Arabíu verður ekki lokað fyrr en 20. september.
„Salah verður ekki ánægður. Þetta eru sturlaðar upphæðir. Þessir peningar þýða að barnabörnin hans munu ekki þurfa að gera neitt," segir Merson.
„Ferli hans lýkur eftir fjögur eða fimm ár. Þá á hann einhver 50 ár eftir af lífi sínu. Þetta er langur tími."
„Ég vorkenni Jurgen Klopp. Eins og verið er að veifa peningum út um allt í Sádi-Arabíu. Glugginn hjá þeim ætti að loka á sama tíma og okkar. Ef hann fer þá getur Liverpool ekki gert neitt fyrr en í janúar. Ég finn til með Liverpool, ég finn til með Klopp og ég finn líka til með Salah."
Mynd: Getty Images
14:34Telja að Salah endi í Sádi-Arabíu
Kaveh Solhekol, fréttamaður Sky Sports News:
„Sádarnir eru sannfærðir um að það sé óhjákvæmilegt að þeir fái Mo Salah að lokum."
Glugginn í Sádi-Arabíu lokar ekki fyrr en 20. september svo Salah málið gæti verið í gangi næstu vikurnar!
Mynd: Getty Images
14:32Ansu Fati frá Barcelona til Brighton (lán)
Fati er tvítugur spænskur landsliðsmaður sem lék 36 leiki með Barcelona á síðasta tímabili. Fati var á sínum tíma álitinn einn allra efnilegasti leikmaður heims en erfið meiðsli hafa sett strik í reikninginn.
„Þetta er frábær samningur fyrir alla. Ég er viss um að Ansu muni hjálpa okkur að ná nýjum markmiðum og við getum hjálpað honum að komast á þann stað sem hann á skilið að vera á."
Fati á að baki níu A-landsleiki og hefur í þeim skorað tvö mörk.
Liverpool hafnaði í dag 100 milljóna punda tilboði í Mo Salah frá Al Ittihad í sádi-arabísku deildinni.
Tilboðið var munnlegt samkvæmt heimildum The Athletic. 100 milljónir punda var fyrsta greiðsla og ofan á það voru 50 milljónir punda í árangurstengdum greiðslum.
14:29Matheus Nunes til Man City (Staðfest)
Mynd: Manchester City
Manchester City tilkynnti í morgun um kaup á Matheus Nunes frá Wolverhampton Wanderers. Portúgalski landsliðsmaðurinn hefur gert fimm ára samning við City.
Hann er fjórði leikmaðurinn sem City kaupir í sumar; á eftir Mateo Kovacic, Josko Gvardiol og Jeremy Doku.
Nunes er 25 ára miðjumaður sem hefur skrifað undir samning til 2028. Hann er keyptur á 53 milljónir punda frá Wolves.
Nunes lék 41 leik fyrir Wolves, hann mun bera treyjunúmerið 27 og hefur leikið ellefu landsleiki fyrir Portúgal.
„Ég er svo ánægður með að vera kominn til Manchester City, Evrópumeistarana. Þetta er félag sem ég hef lengi heillast að. Það var ekki hægt að hafna því tilboði að vinna undir Pep Gurdiola, einum besta stjóra sögunnar, og spila meðal bestu leikmanna heims," segir Nunes.
„Ég lærði svo mikið hjá Wolves og er spenntur fyrir því að halda áfram að bæta mig í ensku úrvalsdeildinni."
Chelsea hefur aukið breidd sína sóknarlega með því að ganga frá kaupum á Cole Palmer frá Manchester City á 40 milljónir punda. Vængmaðurinn er þrettándi leikmaðurinn sem mætir á Stamford Bridge í sumar.
Tyrkneski markvörðurinn Altay Bayindir er kominn til Manchester United frá Fenerbahce. Hann skrifaði undir samning til júní 2027 en hægt er að framlengja samninginn um ár í viðbót.
14:26Rifjum upp það helsta sem hefur gerst í dag...
14:23Brennan Johnson á leið til Tottenham
Mynd: Getty Images
Guardian fjallar um það í dag að Tottenham sé að landa Brennan Johnson. Johnson er framherji Nottingham Forest og hefur hann verið eftirsóttur í sumar.
Tottenham er sagt greiða 45 milljónir punda fyrir velska framherjann sem vakti athygli fyrir frammistöðu sína á síðasta tímabili.
14:21Maupay á leið frá Everton til Brentford á láni
EXCLUSIVE: Brentford reached verbal agreement to sign Neal Maupay on loan with buy option from Everton ???????? #DeadlineDay
Mikel Arteta stjóri Arsenal sagði við fjölmiðlamenn áðan að það væri enginn á leið til félagsins áður en glugganum verður lokað í kvöld. Kai Havertz, Declan Rice og Jurrien Timber komu til félagsins í sumar.
14:17Here we Go! Amrabat á leið til Man Utd
Mynd: Getty Images
Sofyan Amrabat er að ganga í raðir Manchester United á láni frá Fiorentina. Fabrizio Romano vakti athygli á þessu fyrr í dag.
Amrabat er búinn að kveðja liðsfélaga sína í Flórens og er á leið til Englands. Í kjölfarið verða skiptin kláruð. United greiðir 10 milljónir evra fyrir lánið og getur svo keypt hann á 25 milljónir evra.
Amrabat er 27 ára varnarasinnaður miðjumaður sem heillaði marga með frammistöðu sinni með Marokkó á HM í fyrra. Í lánssamningnum verður ákvæði sem United getur nýtt til að fá Amrabat alfarið til félagsins.
Gluggavaktin heilsar, við munum fylgja ykkur alveg þar til glugganum lokar 22:00 og rúmlega það! Hér koma inn allar helstu slúðursögurnar sem eru í gangi, staðfestar fréttir og ýmsar vangaveltur.