Man Utd vill fá Watkins - Helmingslíkur á að Ten Hag verði áfram - PSG hefur áhuga á Mateta
   mán 08. janúar 2024 11:18
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Óliver Steinar stefnir á að fara annað á láni
Óliver Steinar Guðmundsson.
Óliver Steinar Guðmundsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Óliver Steinar Guðmundsson, miðjumaður Vals, hefur áhuga á því að fara annað á láni fyrir sumarið sem er framundan. Þetta herma heimildir Fótbolta.net.

Óliver Steinar, sem verður tvítugur á árinu, samdi við Val fyrir síðasta sumar eftir dvöl hjá Atalanta á Ítalíu.

Óliver er uppalinn hjá Haukum í Hafnarfirði. Hann fór til Atalanta á eftir sumarið 2020 og lék þar með unglingaliðum félagsins.

Miðjumaðurinn kom við sögu í einum leik með meistaraflokki Vals síðasta sumar en hann byrjaði í 4-1 sigri liðsins gegn RB í Mjólkurbikarnum.

Hann spilaði mestmegnis með 2. flokki á síðasta ári en stefnir á það að spila meistaraflokksbolta næsta sumar eftir því sem Fótbolti.net kemst næst.
Athugasemdir
banner
banner
banner