Dyche að taka við Forest - Chelsea vill Aghehowa - Njósnarar Barcelona sáu Greenwood fara á kostum
mánudagur 20. október
Besta-deild karla - Efri hluti
miðvikudagur 15. október
Evrópubikar kvenna
þriðjudagur 14. október
Undankeppni EM U21
mánudagur 13. október
Undankeppni HM
laugardagur 11. október
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
Besta-deild kvenna - Efri hluti
föstudagur 10. október
Undankeppni HM
Undankeppni EM U21
fimmtudagur 9. október
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
miðvikudagur 8. október
Evrópubikar kvenna
mánudagur 6. október
Besta-deild kvenna - Efri hluti
sunnudagur 5. október
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
Besta-deild kvenna - Efri hluti
laugardagur 4. október
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
föstudagur 3. október
Besta-deild kvenna - Efri hluti
fimmtudagur 2. október
Sambandsdeildin
miðvikudagur 1. október
Besta-deild kvenna - Efri hluti
Evrópukeppni unglingaliða
þriðjudagur 30. september
Besta-deild kvenna - Efri hluti
mánudagur 29. september
Besta-deild karla - Efri hluti
sunnudagur 28. september
Besta-deild karla - Neðri hluti
laugardagur 27. september
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
Lengjudeild karla - Umspil
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
föstudagur 26. september
Fótbolti.net bikarinn
mánudagur 22. september
Besta-deild karla - Efri hluti
miðvikudagur 17. september
Lengjudeild karla - Umspil
mánudagur 15. september
Besta-deild karla
fimmtudagur 11. september
Besta-deild karla
þriðjudagur 9. september
Undankeppni HM
mánudagur 8. september
Undankeppni EM U21
sunnudagur 7. september
Besta-deild kvenna
föstudagur 5. september
Undankeppni HM
mánudagur 20. október
Úrvalsdeildin
West Ham 0 - 2 Brentford
Serie A
Cremonese 1 - 1 Udinese
La Liga
Alaves 0 - 0 Valencia
mán 25.apr 2022 15:30 Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Magazine image

Spá Fótbolta.net fyrir Bestu kvenna: 4. sæti

Keppni í Bestu kvenna hefst á morgun. Fótbolti.net mun í dag og á morgun klára að opinbera spá fyrir deildina í sumar. Liðin verða kynnt eitt af öðru.

Fyrirliðinn Anna María Baldursdóttir.
Fyrirliðinn Anna María Baldursdóttir.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Katrín Ásbjörns
Katrín Ásbjörns
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jasmín
Jasmín
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þjálfarinn KG
Þjálfarinn KG
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Spáin:
1. ?
2. ?
3. ?
4. Stjarnan
5. Þróttur
6. Þór/KA
7. Afturelding
8. ÍBV
9. KR
10. Keflavík

4. sæti Stjarnan

Lokastaða í fyrra: 4. sæti, 27 stig, 23 mörk skoruð og 27 mörk fengin á sig. Liðið fékk tólf stig á heimavelli og fimmtán á útivelli. Stigasöfnunin var jöfn yfir tímabilið því liðið var með þrettán stig eftir fyrri hlutann.

Þjálfarinn: Kristján Guðmundsson er á leið í sitt fjórða tímabil hjá Stjörnunni. Kristján er reynslumikill og ef hópurinn kaupir hans pælingar þá eru allar líkur á því að það lið berjist við toppinn á deildinni. Andri Freyr Hafsteinsson er Kristjáni til aðstoðar.

Álit Eiðs
Eiður Ben Eiríksson er sérfræðingur Fótbolta.net í Bestu kvenna en hann var síðustu ár annar af þjálfurum Vals. Hér er álit Eiðs á liði Stjörnunnar.

„Stjörnuliðið fer inn í sitt fjórða tímabil undir stjórn Kristjáns Guðmundssonar sem er með hundtryggan Andra með sér. Undanfarin ár hefur tekist að ná góðum stöguleika í leikmannahópinn og alltaf hefur náðst að styrkja liðið aðeins hér og þar."

Meiri stöðugleiki aftast á vellinum
„Meiri stöðugleiki er á markvarðarstöðunni og vörninni, liðið hefur alltaf átt sínar niðursveiflur í mótinu og það tengist veseninu sem hefur skapast í kringum markmannsstöðuna og varnarlínuna. Það virðist vera búið að leysa markmannsstöðuna nokkuð vel núna með Chante á sínu öðru ári og svo er Aníta komin frá ÍA. Liðið treystir mikið á Önnu Maríu varnarlega og hún er algjört hjarta í þessu liði. Einnig hafa Katrín og Jasmín komið inn með skemmtilega innkomu og fram á við eru þær með mikla breidd."

Verður þetta ár Stjörnunnar?
„Liðið hefur undanfarin ár átt sína spretti og spilað ótrúlega vel á köflum en dottið niður í mjög svo slakar frammistöður. Ég hélt að þetta yrði árið sem Stjarnan gæti gert atlögu að titlinum og ég tel að þær geti það klárlega. Ef liðið hættir að spila eins og aular gegn liðunum sem eru neðar í töflunni og fara inn í alla leiki eins og þær gerðu gegn Breiðablik og Val þá geta þær farið langt."

Lykilmenn: Anna María Baldursdóttir, Jasmín Erla Ingadóttir og Katrín Ásbjörnsdóttir.

Gaman að fylgjast með: Ég get eiginlega ekki beðið eftir að sjá Ólínu spila í sumar. Ég væri til í að borga mig inn fyrir að horfa á hana gerir tækniæfingar.

Komnar:
Aníta Ólafsdóttir frá ÍA
Rakel Lóa Brynjarsdóttir frá Gróttu
Sylvía Birgisdóttir frá Tindastóli (var á láni)

Farnar:
Halla Margrét Hinriksdóttir í Aftureldingu (var á láni)
Klara Mist Karlsdóttir í Fylki (á láni)
Naya Lipkens
Viktoría Valdís Guðrúnardóttir í Hauka
Athugasemdir
banner