Man Utd vill fá Watkins - Helmingslíkur á að Ten Hag verði áfram - PSG hefur áhuga á Mateta
   mán 29. apríl 2024 17:00
Elvar Geir Magnússon
Aston Villa reynir að fá Jonathan David
Jonathan David.
Jonathan David.
Mynd: EPA
Kanadíski sóknarmaðurinn Jonathan David hefur skorað 24 mörk og átt átta stoðsendingar í 44 leikjum í öllum keppnum fyrir franska liðið Lille.

Talað hefur verið um að David sé með munnlegt samkomulag við Napoli en Aston Villa er nú að reyna að krækja í hann.

Núgildandi samningur hans við Lille rennur út á næsta ári en hann ku vera tilbúinn í nýtt ævintýri í sumar.

Aston Villa er í harðri baráttu um sæti í Meistaradeild Evrópu og vill fá hinn 24 ára David til að leiða sóknarlínuna. Sagt hefur verið að Manchester United og AC Milan hafi einnig áhuga en David er með 35 milljóna evra verðmiða.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner