Man Utd vill fá Watkins - Helmingslíkur á að Ten Hag verði áfram - PSG hefur áhuga á Mateta
   mán 29. apríl 2024 18:38
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Guler ætlar að vera eftirmaður Modric
Mynd: Getty Images

Arda Guler leikmaður Real Madrid hefur fengið fá tækifæri með liðinu á sínu fyrsta tímabili en nýtti það svo sannarlega um helgina.


Hann var meiddur í upphafi tímabilsins og hefur nú leikið aðeins sex leiki í deildinni. Hann var í byrjunarliðinu og skoraði sigurmarkið í 1-0 sigri á Real Sociedad um helgina.

Þessi 19 ára gamli Tyrki gekk til liðs við félagið í sumar frá Fenerbache en hann greindi frá því að hann hafi verið vel sannfærður um að ganga til liðs við félagið eftir góðar viðræður.

„Félagið sagði mér í viðræðunum síðasta sumar að ég yrði arftaki Luka Modric. Þeir komu með langtíma plan og ég var sannfærður," sagði Guler.


Athugasemdir
banner
banner
banner