Man Utd ætlar að reka Ten Hag - Hver tekur við? - Tuchel hefur áhuga á starfinu
banner
   fös 02. desember 2016 23:45
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Markvörðurinn skoraði úr hjólhestaspyrnu: Er enn í sjokki
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Við greindum frá því um daginn þegar markvörður í úrvalsdeildinni í Suður-Afríku skoraði með hjólhestaspyrnu.

Markið kom í blálokin, á 95. mínútu, síðustu mínútu uppbótartímans sem gefinn var upp, og var það bara til að krydda aðeins upp á dramatíkina. Markið var jöfnunarmark í 1-1 jafntefli gegn Orlando Pirates.

Markvörðurinn sem skoraði markið heitir Oscarine Masuluke og spilar með Baroka í úrvalsdeildinni í Suður-Afríku.

Baroka, lið Masaluke, náði í stig á móti risunum og nágrönnunum í Orlando Pirates, en markið var það síðasta sem gerðist í leiknum.

Markið var frábært og ekki voru fagnaðarlætin síðri hjá Oscarine Masuluke sem var tilbúinn með dans.

„Ég er enn í sjokki," sagði Masuluke við Independent. „Þegar ég vaknaði morguninn eftir var ég enn hissa."

Hér að neðan má sjá þetta ótrúlega mark hjá honum.



Athugasemdir
banner
banner