Man Utd ætlar að reka Ten Hag - Hver tekur við? - Tuchel hefur áhuga á starfinu
banner
   þri 24. janúar 2017 14:34
Elvar Geir Magnússon
Hvar er Anthony Martial?
Martial hefur ekki sést á æfingasvæði United síðan hann var skilinn eftir utan hóps um helgina.
Martial hefur ekki sést á æfingasvæði United síðan hann var skilinn eftir utan hóps um helgina.
Mynd: Getty Images
Enskir fjölmiðlar velta því fyrir sér hvort brestur sé í sambandi Anthony Martial og knattspyrnustjórans Jose Mourinho hjá Manchester United. Umræðan fór af stað eftir að Martial var ekki í leikmannahópi United í jafnteflinu gegn Stoke um liðna helgi.

Þegar Mourinho var spurður eftir leikinn sagði hann að Martial hefði einfaldlega ekki verið valinn í verkefnið.

Daily Mail segir að Martial sé furðu lostinn og hafi ekki fengið neinar skýringar frá Mourinho. Þessi 21 árs franski leikmaðurinn átti flott fyrsta tímabil á Old Trafford en hefur alls ekki staðið undir væntingum á þessu tímabili.

Mourinho var engan veginn sáttur við frammistöðu Martial í leiknum gegn Liverpool þar sem honum mistókst það verkefni að nýta sér það að Liverpool lék með ungan óreyndan strák, Trent Alexander-Arnold, í bakverði.

Fréttir hafa borist af því að Martial hafi ekki verið sjáanlegur á æfingum Manchester United, hvorki í dag né í gær. Spurning er hvort hann gæti fært sig um set í janúarglugganum en spænska félagið Sevilla er meðal þeirra félaga sem hafa sýnt áhuga á að fá hann í sínar raðir á lánssamningi.

Eftir að Memphis Depay fór til Lyon er ólíklegt að Martial verði seldur í glugganum.

Síðasta sem enskir fjölmiðlar vita um Martial er að hann var í bíl með kærustu sinni, Melanie Da Cruz, á sunnudagskvöld en þau skjötuhjú birtu mynd af sér á samskiptamiðlum.
Athugasemdir
banner
banner
banner