Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
banner
   mið 26. júlí 2017 18:00
Magnús Már Einarsson
Danilo: Ekki erfitt að velja City frekar en Chelsea
Mynd: Manchester City
Hægri bakvörðurinn Danilo segist hafa hafnað Chelsea áður en hann gekk í raðir Manchester City í síðustu viku.

Danilo kom til Manchester City frá Real Madrid á 26,9 milljónir punda.

„Það var ekki erfið ákvörðun að velja City frekar en Chelsea. Á augnablikinu sem City og Pep (Guardiola, stjóri City) hringdi í mig þá vissi ég hvað ég þyrfti að gera. Orð Pep gerðu mig tilbúin í að koma hingað," sagði Danilo.

„Þetta gerðist mjög hratt. Ég var á æfingu hjá Real Madrid þegar Pep hringdi í mig. Ég vildi þá strax skipta um félag og vinna með honum."

„(Zinedine) Zidane reyndi að fá mig til að vera áfram hjá Real en ég var viss um að ég þyrfti á breytingu að halda. Ég þurfti að hugsa um sjálfan mig og finna stað þar sem ég fengi fleiri tækifæri."


Ekki missa af Super match á Laugardalsvelli
Manchester City og West Ham mætast á Laugardalsvelli klukkan 14:00 föstudaginn 4. ágúst. Kræktu þér í miða á midi.is.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner