Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
banner
   fim 07. maí 2015 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Messi á Facebook: Það eru 90 mínútur eftir af leiknum
Mynd: Getty Images
Lionel Messi er álitinn af mörgum besti knattspyrnumaður sögunnar og átti magnaðan leik gegn Bayern München í undanúrslitum Meistaradeildarinnar í gærkvöldi.

Messi skoraði tvö mörk og lagði eitt upp í risaslagnum en tók það skýrt fram eftir leik að viðureigninni væri ekki lokið þar sem síðari viðureignin er eftir á heimavelli Bayern.

„Við náðum góðum úrslitum en höfum ekki lokið neinu," skrifaði Messi í Facebook færslu.

„Það eru ennþá 90 mínútur eftir og þær verða erfiðar í München. Við verðum að vera tilbúnir í slaginn."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner