Thomas Tuchel var hreinskilinn eftir tapið gegn Mónakó í Meistaradeildinni í kvöld. Dortmund er úr leik.
„Frammistaða okkar var ekki nægilega góð," sagði Tuchel eftir 3-1 tap gegn Mónakó, en samanlagt fór 6-3 fyrir Mónakó.
„Frammistaða okkar var ekki nægilega góð," sagði Tuchel eftir 3-1 tap gegn Mónakó, en samanlagt fór 6-3 fyrir Mónakó.
„Við byrjuðum vel og svo vorum við óheppnir þegar við fengum á okkur fyrsta markið. Það eyðilagði trú okkar. Við gerðum of mikið af mistökum," sagði Tuchel svo.
Tuchel segir að Dortmund hafi reynt hvað þeir gátu í seinni hálfleiknum, en það var ekki nóg.
„Við reyndum að koma saman í seinni hálfleiknum, en við náðum aldrei að fylgja á eftir markinu okkar. Við höfum átt góða leiki með þriggja manna vörn, sérstaklega í Meistaradeildinni, en við vorum ekki nægilega góðir í kvöld."
Athugasemdir