Bayern reynir aftur við Walker - Neves til Man Utd?
   mið 19. október 2016 19:22
Elvar Geir Magnússon
Sturlað mark unglingaliðs Ajax gegn Breiðabliki
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
2. flokkur Breiðabliks varð auðveld bráð gríðarlega sterks unglingaliðs hollenska stórliðsins Ajax í Evrópukeppni unglingaliða.

Liðin mættust í Hollandi í dag í leik sem Ajax vann 4-0. Ajax vann 3-0 í Kópavoginum í október og kemst því áfram með samanlögðum 7-0 sigri.

Belgíski miðjumaðurinn stórefnilegi Francesco Antonucci skoraði fyrsta mark leiksins í dag en markið sem sóknarmaðurinn Kaj Sierhuis skoraði og kom Ajax í 2-0 var það fallegasta í leiknum.

Markið má sjá í myndbandinu hér að neðan

Mees de Wit skoraði þriðja markið en lokaorðið átti Boy Kemper.

Yfirburðir Ajax voru algjörir og markvörður Blika í yfirvinnu, hollenska liðið átti 12 skot á markið en Kópavogsliðið 0.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner