Þýski boltinn heldur áfram að rúlla um helgina. Áttunda umferð Bundesligunnar hófst í gærkvöldi og hún heldur áfram í dag með sex leikjum, en þrír þeirra eru í beinni útsendingu.
Dagurinn hefst með fimm leikjum á slaginu 13:30. Þá verður okkar maður í Þýskaland, hann Alfreð Finnbogason í eldlínunni, en hann mun líklegast snúa aftur í lið Augsburg gegn Freiburg í dag eftir meiðsli.
Á sama tíma spilar Borussia Dortmund gegn Ingolfstadt á útivelli og þá eiga lið í stærri kantinum eins og Bayer Leverkusen og Wolfsburg leiki, spennandi verður að sjá hvernig fer hjá þeim.
Lokaleikur dagsins er alls ekki af verri gerðinni, en þá spila risarnir í Bayern München gegn Borussia Mönchengladbach. Bayern, sem spilar á heimavelli í dag, hefur aðeins verið að hiksta upp á síðkastið og það verður fróðlegt að sjá hvað gerist hjá þeim í dag.

Laugardagur 22. október
13:30 Bayer Leverkusen - Hoffenheim
13:30 Darmstadt - Wolfsburg
13:30 Freiburg - Augsburg (Stöð 2 Sport 2)
13:30 Hertha Berlin - Köln
13:30 Ingolstadt - Borussia Dortmund
16:30 Bayern München - Borussia Mönchengladbach (Stöð 2 Sport 2)
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir