Danny Ings skoraði þrennu þegar Liverpool sigraði Felda United 7-0 í æfingaleik í Malasíu í dag.
Liverpool stillti upp veikara liði en vanalega og Ings fékk tækifæri ásamt fleiri leikmönnum sem hafa minna spilað á undirbúningstímabilinu.
Ings skoraði þrennu og þeir Lazar Markovic, Pedro Chiravella, Sheyi Ojo og Joao Carlos Teixeira voru allir með eitt mark.
Byrjunarlið Liverpool í dag: Fulton, Wisdom, Toure, Sakho, Maguire, Ojo, Rossiter, Chirivella, Markovic, Teixeira, Ings.
Athugasemdir