Bayern reynir aftur við Walker - Neves til Man Utd?
   fös 24. júlí 2015 10:30
Magnús Már Einarsson
Ronaldo aftur til Manchester United?
Powerade
Cristiano Ronaldo.
Cristiano Ronaldo.
Mynd: Getty Images
Fernando Llorente.
Fernando Llorente.
Mynd: Getty Images
Ensku slúðurblöðin halda áfram að fara á kostum. Kíkjum á slúður dagsins.



Manchester United vill fá Cristiano Ronaldo aftur til félagsins frá Real Madrid. (Manchester Evening News)

Ronaldo er ekki aðdaándi Rafael Benítez þjálfara Real Madrid en hann er ósáttur við æfingar hans. (Daily Mail)

Manchester United er við það að kaupa Pedro frá Barcelona en líklega verður gengið frá kaupunum í næstu viku. (Daily Express)

Barcelona ætlar ekki að samþykkja lægra tilboð en 22 milljónir punda í Pedro. (Daily Telegraph)

Aston Villa er að krækja í Esteban Cambiasso miðjumann Leicester og Rudy Gestede framherja Blackburn. (Sun)

Arsenal og Tottenham eru að berjast um Pierre-Emerick Aubameyang framherja Dortmund. (Talksport)

Sergio Ramos, varnarmaður Real Madrid, mun funda með Florentino Perez forseta félagsins um helgina. Manchester United vill fá Ramos en Real Madrid vill ekki selja. (Guardian)

Norwich ætlar að fá Marcos Alonso vinstri bakvörð Fiorentina en hann spilaði áður með Bolton. (Talksport)

Tottenham vill kaupa Saido Berahino á 15 milljónir punda og hafa hann frammi með Harry Kane. (Daily Mirror)

Berahino er að hefja viðræður um nýjan samning þrátt fyrir áhuga frá Tottenham og Arsenal. (Daily Star)

Abou Diaby, fyrrum miðjumaður Arsenal, er á leið í læknisskoðun hjá WBA. (Sky Sports)

Jose Mourinho ætlar að gefa Victor Moses séns á að endurvekja feril sinn hjá Chelsea á komandi tímabili. (London Evening Standard)

Yaya Toure vill klára samning sinn hjá Manchester City en þessi 32 ára gamli leikmaður segist vel getað spilað til fertugs. (Manchester Evening News)

Newcastle vill ekki borga 15 milljónir punda fyrir Charlie Austin framherja QPR. (Newcastle Chronicle)

Arsenal er að undirbúa átta milljóna punda tilboð í Fernando Llorente framherja Juventus. (Sun)
Athugasemdir
banner
banner
banner