Man Utd ætlar að reka Ten Hag - Hver tekur við? - Tuchel hefur áhuga á starfinu
   mið 25. nóvember 2015 13:53
Elvar Geir Magnússon
Materazzi: Benítez er vonlaus þjálfari
Marco Materazzi.
Marco Materazzi.
Mynd: Getty Images
Marco Materazzi. fyrrum leikmaður Inter og ítalska landsliðsins, segir að Rafa Benítez sé vonlaus þjálfari. Hann segir Benítez ekki gera sér grein fyrir mikilvægi þess að bera virðingu fyrir leikmönnum.

Benítez þjálfaði Materazzi hjá Inter en þeir tveir náðu ekki vel saman og Benítez náði litlu út úr liði Inter. Benítez er í dag þjálfari Real Madrid en þar á undan hélt hann um stjórnartaumana hjá Napoli.

„Sannleikurinn er sá að í dag er Napoli með þjálfara," segir Materazzi.

„Á laugardaginn horfði ég á El Clasico og fann það sama og Cristiano Ronaldo, Gerrard, terry og Paolo Cannavaro. Þetta eru allt leikmenn með sterka persónuleika sem hafa ekki náð saman með þessum gaur (Benítez)."

Materazzi segir að Benítez beri ekki virðingu fyrir leikmönnum sínum, sérstaklega þeim sem spila minna.

Real Madrid tapaði 4-0 fyrir Barcelona á laugardaginn en pressa er á Benítez sem fékk stuðningsyfirlýsingu frá stjórn Real Madrid á fréttamannafundi á mánudag.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner