Man Utd ætlar að reka Ten Hag - Hver tekur við? - Tuchel hefur áhuga á starfinu
banner
   fim 27. júlí 2017 08:45
Magnús Már Einarsson
Neymar tryggði Barcelona sigur á Man Utd
Neymar skoraði eina markið
Neymar skoraði eina markið
Mynd: Getty Images
Barcelona 1 - 0 Manchester United
1-0 Neymar ('31)

Barcelona lagði Manchester United 1-0 á æfingamóti í Maryland í Bandaríkjunum í nótt.

Neymar skoraði eina markið á 31. mínútu þegar hann nýtti sér mistök Antonio Valencia.

Bæði lið fengu færi til að skora fleiri mörk en David De Gea og Jasper Cillessen vörðu nokkrum sinnum vel.

Þetta var síðasti leikur Manchester United í Bandaríkjaferð sinni en liðið hafði áður unnið LA Galaxy, Real Salt Lake, Manchester City og Real Madrid.
Athugasemdir
banner
banner
banner