Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
   fim 27. október 2016 09:30
Magnús Már Einarsson
Mourinho ákærður fyrir ummæli sín
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho hefur verið ákærður af enska knattspyrnusambandinu fyrir ummæli sín fyrir leikinn gegn Liverpool á dögunum.

Anthony Taylor dæmdi leikinn en hann býr nálægt Old Trafford, heimavelli Manchester United.

Stuðningsmenn Liverpool létu í sér heyra eftir að ákveðið var að Taylor myndi ákveða leikinn.

Mourinho var spurður út í málið á fréttamannafundi og hann sagði að að yrði erfitt fyrir Taylor að dæma leikinn út af pressunni sem væri kominn á hann frá Liverpool.

Stjórar mega ekki tala um dómara fyrir leiki og því hefur Mourinho nú verið ákærður fyrir ummæli sín. Hann fær tíma til 31. október til að svara ákærunni.
Athugasemdir
banner
banner