Bayern reynir aftur við Walker - Neves til Man Utd?
   fös 29. mars 2024 16:37
Elvar Geir Magnússon
Gary O'Neil blæs á kjaftasögurnar - Er ekki að fara í starf hjá Man Utd
Gary O'Neil er ekki að fara að taka að sér starf hjá United.
Gary O'Neil er ekki að fara að taka að sér starf hjá United.
Mynd: EPA
Gary O'Neil stjóri Wolves segir ekki sannleikskorn í þeim fréttum að hann gæti tekið að sér nýtt starf hjá Manchester United. ESPN sagði að United vildi fá hann í þjálfarhlutverk í breyttu skipulagi undir stjórn Sir Jim Ratcliffe.

O'Neil tók við Úlfunum rétt fyrir tímabil og er með liðið í níunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar.

„Ég veit hreinlega ekki hvaðan þessar sögur koma. Ég elst upp við það að félög eins og Manchester United og Liverpool séu sérstök og það er heiður að vera orðaður við þau, en það er ekkert satt í þessu," segir O'Neil en Wolves ætlar að ræða við hann um nýjan samning eftir tímabilið.

„Ég elska starfið mitt hér. Ég ætla að vera stjóri áfram. Ég heyrði bara af þessu þegar fjölmiðlateymið var að fara yfir mögulegar spurningar sem ég gæti fengið frá ykkur."

Það er óljóst hvaða starf ESPN var að orða hann við hjá United en talið er ólíklegt að það hafi verið stjórastarfið. Sun segir að Ratcliffe vilji fá Gareth Southgate og allt teymi hans hjá enska landsliðinu.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 35 25 5 5 85 28 +57 80
2 Man City 34 24 7 3 82 32 +50 79
3 Liverpool 35 22 9 4 77 36 +41 75
4 Aston Villa 35 20 7 8 73 52 +21 67
5 Tottenham 33 18 6 9 67 52 +15 60
6 Man Utd 34 16 6 12 52 51 +1 54
7 Newcastle 34 16 5 13 74 55 +19 53
8 West Ham 35 13 10 12 56 65 -9 49
9 Chelsea 33 13 9 11 63 59 +4 48
10 Bournemouth 35 13 9 13 52 60 -8 48
11 Wolves 35 13 7 15 48 55 -7 46
12 Brighton 34 11 11 12 52 57 -5 44
13 Fulham 35 12 7 16 51 55 -4 43
14 Crystal Palace 35 10 10 15 45 57 -12 40
15 Everton 35 12 8 15 37 48 -11 36
16 Brentford 35 9 8 18 52 60 -8 35
17 Nott. Forest 35 7 9 19 42 62 -20 26
18 Luton 35 6 7 22 48 77 -29 25
19 Burnley 35 5 9 21 38 70 -32 24
20 Sheffield Utd 35 3 7 25 34 97 -63 16
Athugasemdir
banner
banner