Luka Modric, fyrirliði Króatíu og einn af allra bestu miðjumönnum í heimi, segir að Zlatko Dalic verði að leiða króatíska landsliðið á HM.
Króatía tryggði sér sæti á lokamótinu með 4-1 sigri gegn Grikklandi í umspilinu og er landsliðið núna búið að spila þrjá leiki undir stjórn Dalic eftir að Ante Cacic var rekinn í október.
Króatía tryggði sér sæti á lokamótinu með 4-1 sigri gegn Grikklandi í umspilinu og er landsliðið núna búið að spila þrjá leiki undir stjórn Dalic eftir að Ante Cacic var rekinn í október.
„Það væri geðveiki að ráða einhvern annan fyrir Dalic til að fara með okkur á HM. Hann er búinn að gera ótrúlega góða hluti á stuttum tíma," sagði Modric við fréttamenn, en Dalic var upprunalega ráðinn til að klára undankeppnina.
„Það sem skiptir mestu máli er að Króatía er á leiðinni á HM, þar eigum við heima."
Króatía vann Grikkland 4-1 á heimavelli og gerði markalaust jafntefli úti.
Athugasemdir