Lögreglan var kölluð á heimili Ryan Giggs á sunnudagskvöldið en hringt var vegna þess að það voru læti á heimilinu samkvæmt heimildum frá The Sun.
Giggs var yfirheyrður vegna gruns um líkamsmeiðingu og árásar. Talsmaður lögreglunnar í Manchester sagði:
„Lögreglan var kölluð til klukkan 22:05 á sunnudag vegna tilkynningar um ónæði. Kona um þrítugt hlaut minniháttar meiðsli en þurfti ekki frekari meðhöndlun."
„46 ára maður var handtekinn vegna gruns um líkamsárásar."
Lögreglan sagði að Giggs var látinn laus gegn tryggingu. Hann var yfirheyrður síðdeigis í gær af lögreglunni í Manchester.
Giggs og kærasta hans Kate Greville hafa verið saman síðan árið 2017.
Athugasemdir