Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
banner
   fim 14. mars 2024 12:17
Elvar Geir Magnússon
Messi og Suarez sáu um Nashville
Messi varð fyrir meiðslum.
Messi varð fyrir meiðslum.
Mynd: Getty Images
Inter Miami vann 3-1 sigur gegn Nashville í síðari leik liðanna í Meistaradeild CONCACAF, Norður- og Mið-Ameríku.

Vinirnir Lionel Messi og Luis Suarez voru frábærir, Messi lagði upp fyrsta mark Miami fyrir Suarez og skoraði svo annað markið sjálfur. Robert Taylor skoraði þriðja markið og innsiglaði samtals 5-3 sigur.

Nashville skoraði sárabótamark en Inter Miami er komið í 8-liða úrslit.

Þetta var þó ekki bara jákvætt kvöld fyrir Inter Miami en Messi þurfti að fara af velli eftir að hafa fundið fyrir óþægindum aftan í læri. Hann mun að öllum líkindum missa af næsta leik liðsins í MLS-deildinni.


Athugasemdir
banner