Man Utd skoðar það að fá Tuchel - Postecoglou fær fjármagn í sumar - Greenwood eftirstóttur á Englandi
   lau 27. apríl 2024 11:34
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Guardiola hrósar „ótrúlegum" Foden: Mun læra að vera ekki alltaf í sjötta gír
Mynd: Getty Images

Phil Foden leikmaður Man City hefur átt frábært tímabil en Pep Guardiola hrósaði honum eftir að leikmaðurinn skoraði tvö mörk í 4-0 sigri á Brighton í vikunni.


Foden hefur skorað 24 mörk og lagt upp tíu í öllum keppnum á þessari leiktíð en Guardiola segir að hann þurfi að bæta leikskilninginn sinn.

„Hann hefur sjötta gír en hann getur ekki spilað í honum endalaust, hann verður að spila í öðrum og þriðja. Hannn lærir það með tímanum," sagði Guardiola.

„Það er allt svo snöggt hjá honum, stundum verður fótboltinn að vera hægur til að koma andstæðingnum á óvart þegar hann setur í næsta gír. Hann mun skilja leikinn með reynslunni. Hann elskar að spila og vinnusemin hans er ótrúleg."


Athugasemdir
banner
banner