Branthwaite, Zirkzee og Olise til Man Utd? - Potter til Hollands - Nunez til Barca og Osimhen til Chelsea
   mið 15. apríl 2020 21:26
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Nýrri treyju Liverpool lekið
Mynd: Footyheadlines
Footyheadlines hefur birt myndir af treyjum Liverpool fyrir næstu leiktíð. Félagið hefur gert samning við Nike eftir að hafa verið með samning við New Balance.

Footyheadlines er áreiðanleg síða og hér að neðan má sjá myndir af treyjunni.

Heimatreyjan verður áfram í frekar dökkum tón, sami litur verður á henni og treyju Portúgal frá HM 2018.

Ofarlega á bakinu, eins og áður, verður talan 96 til minningar um þá sem létust í Hillsborough slysinu.

Miðlarnir Evening Standard og Live4Liverpool fjalla um að einhverjir stuðningsmenn séu ekki sáttir við útlitið. Aðrir segja treyjuna minna sig á tímabilið 2006 og 2008.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner