RB Leipzig 0 - 1 Borussia D.
0-1 Axel Witsel ('19 )
0-1 Axel Witsel ('19 )
Borussia Dortmund ætlar sér að vinna þýska meistaratitilinn í fyrsta sinn frá árinu 2012.
Dortmund sótti RB Leipzig heim í Bundesligunni í kvöld og það var eitt mark sem skildi á milli. Það var miðjumaðurinn Axel Witsel sem skoraði það með þrumuskoti úr teignum á 19. mínútu. Witsel kom til Dortmund fyrir tímabilið eftir að hafa verið í Kína og hefur hann reynst mikill happafengur.
Lokaniðurstaðan 1-0 fyrir Dortmund sem er á toppnum með sex stiga forskot á Bayern München. Dortmund stóðst stórt próf í kvöld þar sem RB Leipzig er með hörkulið sem situr í fjórða sæti deildarinnar með 31 stig.
Sjá einnig:
Þýskaland: Afar svekkjandi úrslit fyrir Alfreð
Athugasemdir