Man Utd líklegast að fá Olise - Man Utd til í að hlusta á tilboð í Rashford - Juve leiðir kapphlaupið um Greenwood
banner
   fös 20. mars 2015 13:32
Brynjar Ingi Erluson
Landsliðshópurinn gegn Kasakstan - Eiður mættur aftur
Eiður Smári Guðjohnsen er mættur aftur í landsliðshópinn
Eiður Smári Guðjohnsen er mættur aftur í landsliðshópinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
Lars Lagerbäck og Heimir Hallgrímsson, þjálfarar íslenska A-landsliðsins í knattspyrnu, voru rétt í þessu að tilkynna hópinn sem mætir Kasakstan ytra í undankeppni Evrópumótsins sem og Eistlandi í vináttuleik.

Eiður Smári Guðjohnsen, sem hefur verið magnaður með liði Bolton frá því hann samdi við liðið í desember er kominn aftur í hópinn en hann gaf það út eftir leikina gegn Króatíu að landsliðsskórnir væru komnir á hilluna.

Þeir eru hinsvegar komnir aftur af hillunni en hann hefur gert fjögur mörk í sextán leikjum í ensku fyrstu deildinni.

Theodór Elmar Bjarnason er frá vegna meiðsla en hann hefur reynst íslenska liðinu afar mikilvægur í undankeppninni. Sölvi Geir Ottesen er einnig frá vegna meiðsla.

Guðlaugur Victor Pálsson, Hörður Björgvin Magnússon og Haukur Heiðar Hauksson eru einnig í hópnum en hægt er að sjá hann í heild sinni hér fyrir neðan.

Landsliðshópurinn:

Markmenn:

Hannes Þór Halldórsson - Sandnes Ulf
Ögmundur Kristinsson - Randers
Ingvar Jónsson - Start

Varnarmenn:

Kári Árnason - Rotherham United
Ragnar Sigurðsson - FC Krasnodar
Hörður Björgvin Magnússon - Cesena
Birkir Már Sævarsson - Hammarby
Jón Guðni Fjóluson - Sundsvall
Ari Freyr Skúlason - OB
Hallgrímur Jónasson - OB
Haukur Heiðar Hauksson - AIK

Miðjumenn:

Aron Einar Gunnarsson - Cardiff City
Gylfi Þór Sigurðsson - Swansea City
Emil Hallfreðsson - Hellas Verona
Jóhann Berg Guðmundsson - Charlton Athletic
Birkir Bjarnason - Pescara
Rúrik Gíslason - FCK
Guðlaugur Victor Pálsson - Helsingborg

Sóknarmenn:

Eiður Smári Guðjohnsen - Bolton Wanderers
Kolbeinn Sigþórsson - Ajax
Alfreð Finnbogason - Real Sociedad
Viðar Örn Kjartansson - Jiangsu Guoxin-Sainty
Jón Daði Böðvarsson - Viking
Athugasemdir
banner
banner