Man Utd hefur áhuga á Yoro - Osimhen í forgangi hjá Chelsea - Napoli, Juve og Atletico hafa áhuga á Greenwood
banner
   fim 02. maí 2024 21:51
Brynjar Ingi Erluson
Einkunnir Chelsea og Tottenham: Margir frábærir hjá heimamönnum
Trevoh Chalobah var bestur á Brúnni
Trevoh Chalobah var bestur á Brúnni
Mynd: Getty Images
Enski varnarmaðurinn Trevoh Chalobah var maður leiksins í 2-0 sigri Chelsea á Tottenham á Stamford Bridge í kvöld.

Chalobah skoraði fyrra mark Chelsea í leiknum og átti mjög góðan leik varnarlega.

Sky Sports gaf honum 8 fyrir frammistöðuna, en hann var ekki sá eini sem fékk þá einkunn því þeir Benoit Badiashile, Marc Cucurella, Moises Caicedo, Conor Gallagher, Noni Madueke og Nicolas Jackson fengu einnig sömu einkunn.

Það voru margir slakir í liði Tottenham, sem var að tapa þriðja deildarleiknum í röð, en þeir Emerson Royal, Yves Bissouma, Brennan Johnson, Dejan Kulusevski, Heung-Min Son og Richarlison fengu allir 5.

Chelsea: Petrovic (7), Gilchrist (7), Chalobah (8), Badiashile (8), Cucurella (8), Caicedo (8), Gallagher (8), Palmer (7), Madueke (8), Mudryk (7), Jackson (8).
Varamenn: Casadei (7), Acheampong (7), Tauriainen (n/a).

Tottenham: Vicario (6), Porro (6), Romero (6), Van de Ven (7), Royal (5), Bissouma (5), Sarr (6), Johnson (5), Kulusevski (5), Son (5), Richarlison (5).
Varamenn: Maddison (6), Hojbjerg (6), Bentancur (6), Gil (6), Lo Celso (6).
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner