Man Utd hefur áhuga á Yoro - Osimhen í forgangi hjá Chelsea - Napoli, Juve og Atletico hafa áhuga á Greenwood
   fim 02. maí 2024 16:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Myndband: Sævar og Kolbeinn öflugir í eldhúsinu
Sævar Atli.
Sævar Atli.
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
Kolbeinn.
Kolbeinn.
Mynd: Getty Images
Á veitingastaðnum Cocks & Cows í Danmörku er hægt að panta nýjan Lyngby hamborgara. Hamborgarabrauðin eru blá sem vísar í bláa litin í merki og treyjum Lyngby.

Þeir Sævar Atli Magnússon og Kolbeinn Finnsson kynna hamborgarann fyrir stuðningsmönnum liðsins í skemmtilegu myndbandi.

Kolbeinn er í eldhúsinu og Sævar er á barnum og þjónar til borðs. Kolbeinn lagði einmitt upp mark fyrir Sævar í upphafi vikunnar svo tengingin þar á milli er góð.

Lyngby er í 10. sæti dönsku deildarinnar, tveimur stigum fyrir ofan fallsæti þegar fimm umferðir eru eftir. Andri Lucas Guðjohnsen er sömuleiðis í Lyngby.


Athugasemdir
banner
banner
banner