Bayern hefur áhuga á Bruno - Man Utd ætlar að bjóða í Branthwaite - Frank og McKenna orðaðir við stjórastarfið á Old Trafford
banner
   mið 01. maí 2024 22:06
Brynjar Ingi Erluson
Einkunnir Dortmund og PSG: Gamli Sancho er mættur aftur
Jadon Sancho´átti frábæran leik með Dortmund
Jadon Sancho´átti frábæran leik með Dortmund
Mynd: Getty Images
Jadon Sancho var besti maður leiksins í 1-0 sigri Borussia Dortmund á Paris Saint-Germain í fyrri undanúrslitaleik liðanna í Meistaradeild Evrópu, en 90min heldur utan um einkunnagjöf leikmanna að þessu sinni.

Síðustu ár hafa verið undarleg hjá Sancho. Hann samdi við Manchester United árið 2021 en náði sér aldrei á strik hjá félaginu og var meðal annars sendur í skammarkrókinn eftir að hafa gagnrýnt Erik ten Hag, stjóra félagsins.

Hann fór til Dortmund á láni í byrjun ársins og hefur gert ágætis hluti þar, en frammistaða hans í kvöld minnti á gamla góða Sancho áður en hann fór til United.

90min gaf Sancho 9 í einkunn en Niclas Füllkrug, markaskorari Dortmund, fær sömu einkunn. Nuno Mendes, leikmaður PSG, var slakastur með 4. Kylian Mbappe fékk 6 og Ousmane Dembele 5.

Dortmund: Kobel (6), Ryerson (7), Hummels (8), Schlotterbeck (8), Maatsen (8), Sabitzer (7), Can (7), Sancho (9), Brandt (7), Adeyemi (7), Füllkrug (9).
Varamenn: Reus (6).

PSG: Donnarumma (6), Hakimi (6), Marquinhos (7), Hernandez (5), Mendes (4), Zaire-Emery (7), Vitinha (6), Ruiz (5), Dembele (5), Mbappe (6), Barcola (6).
Varamenn: Beraldo (6), Kolo Muani (5).
Athugasemdir
banner
banner
banner